fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Þórunn Antonía lokar Góðu systur: „Vil ekki að það sé staður sem setur út hatursáróður á annað fólk í mínu nafni“

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 6. nóvember 2018 15:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórunn Antonía Magnúsdóttir hefur ákveðið að loka einni fjölmennustu Facebook-síðu landsins, Góðu systur. Þetta tilkynnti Þórunn í hópnum nú á fjórða tímanum í dag.

„Elsku góðu systur. Þegar ég stofnaði þessa síðu þá var dóttir mín nokkurra mánaða. Ég var að jafna mig á mjög erfiðum tímum, veikindum á meðgöngu og öðrum áföllum sem gerðu mér róðurinn erfiðann í lífinu. Ég var langt niðri og ég fékk svo ótrúlega mikinn styrk frá konum í kringum mig. Ég ákvað að senda út allt það fallega og góða sem ég þráði útí heiminn í von um að það snerti einhver hjörtu og að aðrar konur gerðu það sama. Ég ákvað að líta í eigin barm og skoða hegðun mína og samskipti og laga allt sem ég ég gæti í sambandi mínu við mínar kynsystur sem eru oft flókin kvenna á milli og ég þráði að skapa stað sem baktal og dómharka væru ekki í boði,“ segir Þórunn sem bætir við að reglurnar hafi verið einfaldar. Þarna ættu konur að tala fallega til hverrar annarra og deila jákvæðum boðskap en ekki neikvæðni og niðurrifi.

„Ég ákvað eftir heilmikla vinnu að taka út neikvæðni og svara allskonar skilaboðum, kvörtunum og heimtu frekju kvenna innan hópsins sem áttuðu sig oft á tíðum að þetta væri 100% sjálfboða vinna að taka skref til baka og fá hjálp við að leiða síðuna í rétta átt. En nú er svo komið að ég sé miklu meira slæmt hér inni en gott og ég hef ekki tíma né þörf fyrir að skamma fullorða einstaklinga fyrir að fara ekki eftir reglum hópsins því ég kýs að eiga frekar samskipti við fólkið í mínum raunheimi sem skiptir mig í alvöru máli. Svo er ekkert skemmtilegt að þurfa endalaust að svara skilaboðum um að ég eigi að taka þetta og hitt út því einhver er að nota þetta sem ruslakistu en ekki vettvang til uppörvunar og kærleika. Þið sem hafið verið hér fengið uppörvun stuðning og allt sem síðan snerist um ég sendi til ykkar ást og einnig þið sem þurfið að greiða úr ykkar gremju og reiði, ég sendi ykkur meiri ást en ég hef ákveðið að loka þessari síðu því ég vil ekki að það sé staður sem meiðir, særir eða setur út haturs áróður á annað fólk í mínu nafni,“ segir Þórunn sem bætir við að hún ætli að einbeita sér að sjálfri sér.

„Ég ætla að halda áfram að rækta sjálfa mig og standa með mér að vera góð systir og aðallega góð systir við mig sjálfa því að kærleikur og ást og skilningur kemur jú þaðan. Frá okkar eigin sjálfs ást og virðingu og það ætti að vera eilífðar verkefni okkar allra. Að líta frekar í spegil og skoða okkar bresti frekar en að tala um hvað aðrir séu ömurlegir. Takk fyrir að hjálpa öllum þeim fjölskyldum sem leituðu til okkar í neyð og ykkur ölum sem söfnuðu fyrir hinum ýmsu málefnum og ég vil taka það fram að ég elskaði þetta ferli og það veitti mér innsýn í heim kvenna, samkipti, vináttu og allt þar frameftir götunum sem ég mun nýta mér stórkostlega í næstu ævintýrum. Endilega setjið komment hér fyrir neðan um hvað síðan gerði fyrir ykkur. Ég mun halda þessum póst inní í smástund áður en ég kveð alveg. Ást, virðing, vinsemd og friður.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Þrjú stórlið vilja kaupa óvænta hetju Real Madrid

Þrjú stórlið vilja kaupa óvænta hetju Real Madrid
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Löggan fellir niður sektir á þá sem voru gómaðir á nagladekkjum í vikunni

Löggan fellir niður sektir á þá sem voru gómaðir á nagladekkjum í vikunni
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.