Að gefnu tilefni hefur Sigga Dögg kynfræðingur gefið út áríðandi tilkynningu til landsmanna. Segir hún mikilvægt að smokkar séu smurðir með sleipiefni en ekki smjöri þar sem smjörið getur aukið hættuna á því að smokkurinn rifni.
„Og svona til að bæta því við þá er ég örugglega alveg snældusnar í snúllunni, brjáluð í buddunni, húrrandi hrópandi klikkuð í kuntunni, og pottþéttur píkupönkari sem pælir í pjöllum og píkum og tussum og turðum og sköpum og skeiðum og vagínum. Stuðlun dagsins og íslenskukennslu lokið. Í bili.“ Segir Sigga Dögg meðal annars.
Færslu Siggu Daggar má lesa í heild sinni hér að neðan: