Aþena Lóa sem er sex ára gömul kom á dögunum til Þorsteins, stjúpföður síns í þeim tilgangi til þess að fá hann til að kaupa handa sér myndvél sem hana langaði í og hafði safnað sér fyrir.
Þorsteinn sagði við dóttur sína að nú væru þau í innkaupabanni fyrir jólin og því gætu þau ekki keypt myndavélina. Aþena var nú ekki tilbúin til þess að sætta sig við þetta svar og greindi föður sínum frá því að hún ætti nú alveg pening fyrir myndavélinni sjálf og lagði hann á borðið fyrir pabba sinn að telja.
Myndavélin kostaði um tíu þúsund krónur og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hafði Aþena greinilega safnað sér fyrir upphæðinni. Hún misskildi upphæðina þó örlítið og úr varð þessi skemmtilega saga sem Þorsteinn deildi á Facebook og gaf Bleikt leyfi til þess að birta: