fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Karen segir mikilvægt að rifja ekki upp gömul mistök: „Ástin snýst ekki um samanburð eða keppni“

Aníta Estíva Harðardóttir
Þriðjudaginn 20. nóvember 2018 13:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karen Lind Harðardóttir hefur undanfarið verið í mikilli sjálfsskoðun með það að markmiði að takast á við andlega erfiðleika sem hún hefur upplifað lengi.

Kvíða, þráhyggja, hræðsla og vanlíðan voru daglegir kvillar sem Karen upplifði og var það farið að hvíla svo þungt á henni að hún var hætt að geta unnið. Það var nýlega sem Karen ákvað að líta til fortíðar, grafa upp gamla erfiðleika og takast á við sjálfa sig. Stofnaði hún síðuna Andlega hliðin þar sem hún deilir hugsunum sínum með lesendum í þeirri von að hleypa fólki með sér í ferðalag sitt í átt að bata.

„Nýlega las ég tilvitnun, en það er deilt um hvaðan hún kemur. Hún hljómar í þessa átt:
„Munurinn á því að elska eitthvað og líka vel við eitthvað: Þegar þér líkar vel við blóm þá tekur þú það upp frá jörðinni… Þegar þú hins vegar elskar blómið, þá vökvar þú það daglega“. Mér finnst þetta einstaklega falleg leið til þess að horfa á lífið. Meginmarkmiðið þegar við virkilega elskum einhvern ætti alltaf að vera „Hvað get ég gert til þess að hjálpa þér að blómstra?“. Þá er ég líka að tala um okkur sjálf. Þetta ættum við líka að segja við okkur sjálf. „Hvað get ég gert til þess að hjálpa mér að blómstra?“. Svo getum við yfirfært það á alla þá sem við elskum. Hvernig hjálpum við okkur sjálfum og þeim sem við elskum að líða vel? Hvað getum við gert?“ Segir Karen í nýjustu færslu sinni.

Að elska einhvern og að líka vel við hann er ekki það sama

„Það að líka vel við einhvern er ekki það sama og að elska einhvern, en þetta tvennt er oft misskilið sem sami hluturinn þ.e. ekki í orðræðunni sjálfri heldur hugmyndinni. En það kemur fyrir að fólk haldi að það elski einhvern þegar þeim líkar einfaldlega bara vel við hann. Nærvera einstaklingsins lætur þeim líða vel. En þegar þú virkilega elskar einhvern þá gerir þú þitt besta til þess að hjálpa einstaklingnum að rækta sjálfan sig.“

Útskýrir Karen að með því sé hún að tala um umhyggju, skilning, alúð og væntumþykju. Að einstaklingurinn sem við elskum upplifi það að við sjáum, heyrum og skiljum hann. Líka þegar mistök verða til staðar.

„Þegar mistök verða eru þau yfirleitt ekki viljandi, svo í stað þess að hoppa strax í „af hverju þarftu alltaf að gera þetta“ gírinn. Hvernig væri þá að vinna í sameiningu að lausn til þess að koma í veg fyrir að mistökin verði endurtekin. Hjálpa einstaklingnum að fara aðrar leiðir og styðja hann í því.“

Segir Karen það betri lausn þar sem fólk læri í raun ekki af því að vera sífellt dæmt fyrir mistök sín og að með þeirri aðferð upplifi einstaklingar síður hræðslu og vanlíðan.

„Ef við vinnum saman að markmiðinu verður ferðalagið ekki eins erfitt. Mistök eru bara mistök og þau eru mannleg. En ef við elskum einhvern (okkur sjálf einnig) þá hjálpum við þeim (eða okkur sjálfum) að finna leiðir til þess að bæta úr þeim og koma í veg fyrir endurtekningu þeirra.“

Veldur kvíða að vera stanslaust áminntur á mistök

Karen telur að ef um virkilega ást sé að ræða á milli einstaklinga þá taki þeir alltaf vel á móti hvor öðrum og séu ekki stöðugt að minna hvorn annan á mistök eða ágreining.

„Við vitum aldrei hvað einstaklingurinn hefur upplifað yfir daginn, við vitum aldrei hvernig honum líður þegar hann kemur heim. Hvernig vilt þú að það sé tekið á móti þér þegar þú kemur heim?“

Segir Karen að ef fólk sé sífellt að minna hvort annað á mistök um leið og það hittist geti það valdið því að fólk kvíði því að koma heim til hvors annars.

„Það er ekki gott fyrir neinn að það fyrsta sem þið segið við hvort annað sé hvað þið séuð orðin þreytt á einhverjum mistökum. Það veldur því bara að einstaklingnum kvíði fyrir að hitta ykkur. Kvíði fyrir að hafa ekki verið nógu duglegur yfir daginn eða í þá áttina. Kvíði fyrir að endurtaka mistök. Það eru ekki góð samskipti. Hvernig væri frekar að taka utan um hvort annað, ræða saman um daginn ykkar og svo eftir smá tíma nefna það kannski við hvort annað að það hafi verið gerð smá mistök, hvort það væri ekki hægt að passa betur upp á það. Þá hefur einstaklingurinn alltaf það hugarfar að sama hvað hefur gerst þá mætir honum alltaf hlýja og skilningur þegar hann hittir þennan einstakling. Þeir vita báðir að ef mistök verða þá geta þeir rætt þau saman í rólegheitum og fundið lausn á því.“

Ástin er ekki keppni

Einnig telur Karen mikilvægt að dæma ekki aðra fyrir mistökin sem þau hafi gert.

„Sýnum frekar skilning og aðstoðum hvort annað. Því mistökin eru yfirleitt ekki viljandi. Hvers vegna að vera að rifja þau upp. Mistök eru til þess að læra af þeim, ekki til þess að vera nýtt sem vopn gegn manni seinna meir. Hugsum í lausnum en ekki vandamálum og hjálpum hvoru öðru ef við erum í vandræðum. Því ástin snýst um umhyggju og hlýju. Að vera alltaf til staðar, sama hvað. Að geta fyrirgefið hvoru öðru fyrir það sem við gerum vitlaust og reyna í sameiningu að bæta það sem við getum bætt.“

Telur Karen mikilvægt að fólk átti sig á því að einstaklingar kunni ekki að bregðast við öllum kringumstæðum um leið og það fæðist.

„Ástin snýst ekki um samanburð eða keppni um hver stendur sig betur. Alls ekki. Ástin snýst um að hjálpa hvort öðru að líða vel og vera örugg með eigin ákvarðanir og okkur sjálf almennt. Lífið er alltaf að kenna manni eitthvað nýtt. Ef þú elskar einhvern njótið frekar ferðalagsins saman og sigrist í sameiningu á öllum hindrunum sem lífið getur hent á ykkur.“

Að lokum skrifaði Karen niður nokkur ráð sem henni þykir gott að miða við:

1. Engin mistök/ágreiningur eru þess virði að vera það fyrsta sem þið nefnið við hvort annað þegar þið hittist ef þið elskið hvort annað.


2. Takið alltaf vel á móti hvoru öðru og sýnið hvoru öðru væntumþykju og hlýju.


3. Sýnið hvoru öðru skilning óháð því hvort þið séuð sammála eða ekki.


4. Minnið ykkur á að þó svo eitthvað hafi ekki neikvæð áhrif á ykkur þá gæti það vel haft neikvæð áhrif á næsta mann.


5. Takið tillit til þess að það fólk bregst mismunandi við ólíkum aðstæðum.


6. Það að hafa rétt fyrir sér er ekki mikilvægara en eigin líðan og líðan annara.


7. Hjálpist að við að leysa vandamál ef þau eru til staðar, ekki gagnrýna eða dæma. Það gerir ekkert gagn.


8. Aldrei lofa einhverju sem þið getið ekki 100 % staðið við.


9. Það hefur enginn rétt á því að segja þér að líðan þín eigi ekki rétt á sér. Allir hafa rétt á því að líða eins og þeim líður. Óháð því hvað raunverulega gerðist.


10. Ræðið hvers vegna ykkur líður eins og ykkur líður, oft gerir maður sér ekki grein fyrir því að maður hefur gert eitthvað rangt. Þá er bara hægt að ræða málin.


11. Gefið öllum aðilum tækifæri til þess að segja frá sinni upplifun til þess að hægt sé að finna út hver orsökin fyrir ágreiningnum var og hjálpist svo að við að finna lausnir til þess að leiðrétta orsökina.


12. Elskið hvort annað óskuldbundið.


13. Aldrei nota eitthvað sem þið tókuð sjálf ákvörðun um að gera fyrir hinn aðilann sem eitthvað vopn til að nota seinna meir.


14. Komið hreint fram við aðra og treystið því að aðrir geri það sama.


15. Gerið ykkur grein fyrir því að ekkert er fyrr en það verður. Þ.e. að hugsanir verða ekki að raunveruleika fyrr en þær verða að raunveruleika. Ekki lifa í „hvað ef“ eða „kannski er“ hugmyndum, lifum í því sem„er“.


16. Finnið út á hverjum degi hvað sé það mikilvægasta sem þið getið gert þann daginn fyrir ykkur sjálf og þá sem ykkur þykir vænt um og gerið það fyrst og fremst. Eftir það er hægt að gera allt hitt.


17. Ekki gagnrýna upplifanir annara, þið getið aldrei vitað hvernig þeim líður.


18. Þakkið fyrir alla litlu hlutina í lífinu. Stundum gleymast þeir.


19. Minnið ykkur á að þið vitið aldrei hvað getur gerst. Njótið augnabliksins og hugsið vel um þá sem ykkur þykir vænt um (ykkur sjálf meðtalin).

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum