fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Átakanlegt símtal móður til Neyðarlínunnar: „Hann hættir ekki, hjálpið mér, hún er að deyja!“

Auður Ösp
Laugardaginn 10. nóvember 2018 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Flýtið ykkur, hún er að deyja!! Geriði það, flýtið ykkur!“ hrópaði Miranda Harrell í símtali við Neyðarlínuna þann 22.október síðastliðinn. Á meðan horfði hún upp á fjölskylduhundinn ráðast á eins árs gamla dóttur sína. Það var sama hvað Miranda reyndi, dýrið var gjörsamlega stjórnlaust.

Fjölskyldan er búsett í Rocky Mount í Norður Karólínu. Mæðgurnar höfðu verið að leika sér saman úti í garði þegar hundur fjölskyldunnar, 6 ára gamall pit bull, réðst skyndilega á dóttur Miröndu og reyndist ómögulegt að stoppa hann.

Á upptöku af símtalinu til Neyðarlínunnar  má heyra starfsmann reyna sitt besta við að ráðleggja örvæntingarfullri móður í þessum hrikalegu aðstæðum.

„Hann hættir ekki, hjálpið mér, hún er að deyja!“ heyrist Miranda æpa.

Miranda fylgir fyrirmælum starfsmannins, sem fyrst ráðleggur henni að setja prik í kjaft hundsins og þvínæst að berja hann í hausinn með pönnu.

Foreldrar Triniti. Ljósmynd/Daily Mail

Þegar hvorugt ráðið virkar ráðleggur starfsmaðurinn henni að hlaupa inn í eldhús og sækja hníf, og því næst skera hundinn á háls.

„Hnífurinn er of bitlaus,“ heyrist Miranda þvínæst stynja upp grátklökk. Starfsmaðurinn svarar henni: „Þú verður að reyna hvað sem er til að fá hundinn til að sleppa. Líf hundsins er ekki það sem skiptir máli á þessari stundu.“

Því næst slitnar símtalið.

Fram kemur á vef Telegram að móðirin, sem orðin var vitstola af skelfingu hafi jafnvel reynt að stinga hundinn, en allt kom fyrir ekki.

Fjölskylduhundurinn. Ljósmynd/Facebook

Fram kemur á vef Daily Mail að lögreglan hafi mætt á vettvang skömmi síðar og skotið hundinn til bana. Tvisvar þurfti að hleypa af byssunni áður en dýrið gaf loks upp öndina.

Triniti litla var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést af völdum áverka sinna þann 29.október síðastliðinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Píratar vilja Útlendingastofnun feiga

Píratar vilja Útlendingastofnun feiga
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Kostar sitt að kúka í Lystigarðinum – Akureyrarbær tvöfaldar verðmiðann

Kostar sitt að kúka í Lystigarðinum – Akureyrarbær tvöfaldar verðmiðann
Eyjan
Fyrir 15 klukkutímum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.