fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Kim Kardashian gagnrýnd fyrir nýja mynd á Instagram – „Haltu þessari mynd fyrir eiginmann þinn“

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 7. október 2018 12:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þúsundþjalasmiðurinn Kim Kardashian er uppátækjasöm og hefur nýjasta uppátæki hennar vakið talsverða athygli. Hún birti mynd af sér á Instagram-síðu sinni í afar litlu bikini og hefur myndin vakið spurningar um siðferðiskennd raunveruleikastjörnunnar. Myndina og færsluna má sjá hér að neðan.

Myndin sem um ræðir sýnir glöggt líkamsbyggingu Kim og skilur í raun ekki mikið eftir fyrir ímyndunaraflið. Hún er klædd Chanel-bikiníi og hylur toppurinn í raun aðeins gerivörturnar. Nærbuxurnar eru ekki ýkja efnismiklar eins og sjá má hér að neðan.

Bikiníið sem Kim klæðist er úr línu Chanel frá árinu 1996 og klæddust þekktar fyrirsætur á borð við Eva Herzigova og Stella Tennant því á sýningarpöllunum fyrir margt löngu.

Sitt sýnist hverjum um myndina; sumir hafa hrósað Kim, sagt myndina flotta og óþarfi sé að móðgast yfir henni. Öðrum finnst Kim ganga full langt og segja myndina af kynferðislegum toga – vafasamt í ljósi þess að margar ungar stúlkur líta upp til Kim Kardashian sem er með 118 milljónir fylgjenda á Instagram.

Fjölmargir hafa skrifað athugasemdir við myndina. Einn segir myndina „ógeðslega“, annar segir hana „dónalega“ og „klúra“ á meðan enn annar segir: „Þú ert betri en þetta. Haltu þessari mynd fyrir eiginmann þinn.“

Kim Kardashian er sem fyrr segir ein skærasta stjarnan á Instagram og eru aðeins Selena Gomez, Cristiano Ronaldo og Ariana Grande með fleiri fylgjendur en hún.

 

View this post on Instagram

 

Chanel vintage, lets please be specific

A post shared by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Píratar vilja Útlendingastofnun feiga

Píratar vilja Útlendingastofnun feiga
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Kostar sitt að kúka í Lystigarðinum – Akureyrarbær tvöfaldar verðmiðann

Kostar sitt að kúka í Lystigarðinum – Akureyrarbær tvöfaldar verðmiðann
Eyjan
Fyrir 15 klukkutímum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.