Á vef shero.dk voru nýlega birtar frásagnir nokkurra kvenna um vandræðalegustu augnablikin í tengslum við klámáhorf þeirra.
Amalie sagðist enn hafa búið heima hjá sér þegar þetta gerðist. Norskur kærasti hennar var þá hjá henni og voru þau að stunda kynlíf. Þá var bankað og inn gekk faðir hennar. Hann sá að þau voru að horfa á klám og bauð þeim þá bara smá súkkulaði. ”Okkur langaði ekki til að stunda meira kynlíf. Og hann stóð bara og glápti á okkur.”
„Eftir að hafa horft á klám að morgni til þurfti ég að fara með strætó í vinnu. Ég hafði ekki lokað netvafranum í símanum nógu vel. Þegar ég opnaði hann í strætónum til að lesa fréttir heyrðust bara háar stundur og djarft tal. Þetta hlaut blandaðar móttökur hjá öðrum farþegum.“
Sagði Mathilde.
„Við vorum í heimsókn hjá tengdaforeldrum mínum og fimm ára dóttir mín var með. Hún vildi fá símann minn lánaðan. Þegar hún ýtti á netvaframyndina brá henni mikið. Þá sá hún konu veita karli munngælur. Því næst spurði hún hátt af hverju konan væri með „pissitröllið“ í munninum.“
Sagði Henriette
„Við héldum innflutningspartý og þurftum að nota sjónvarpið til að spila tónlist. Ég bað vinkonu mína um að finna einhverja tónlist. Við höfðum ekki lokað klámsíðunum sem við höfðum horft á í sjónvarpinu. Skyndilega sátu bara 10 manns og hlógu eða roðnuðu. Systir mín er mjög viðkvæm og hljóp inn í herbergi og faldi sig. Hún líktist helst tómat.“
Sagði Julie.