fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Bryndís hefur klórað sig til blóðs, skorið sig og hýtt sig með belti – Átta ára reyndi hún fyrst sjálfsvíg

Aníta Estíva Harðardóttir
Þriðjudaginn 30. október 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bryndís Steinunn hefur barist við þunglyndi, kvíða og sjálfseyðingarhvöt síðan hún var barn. Þegar hún var aðeins átta ára gömul reyndi hún í fyrsta skiptið að svipta sig lífi og hefur barátta hennar við sjúkdómana tekið mikinn toll af henni.

Bryndís hefur gert margt til þess að reyna að losna við veikindin en sama hvað hún hefur gert hafa þau fylgt henni fast og fyllt huga hennar af vonleysi og vanmætti. Í einlægri færslu sinni á síðunni Amare lýsir Bryndís því hvernig veikindi hennar hafa komið fram í gegnum líf hennar. Færsluna skrifar Bryndís líkt og um bréf frá veikindum hennar væri að ræða.  

Óboðinn og óvelkominn

mig langar að kynna mig fyrir ykkur. Margir þekkja mig og ég kem alltaf óboðin og óvelkominn. Ég er dimmur og drungalegur og geri allt sem ég get til þess að gera lífið erfitt hjá þeim sem ég ákveð að fylgja. Sumir hafa látist út af mér, aðra dreymir um dauðann á meðan einhverjir neita að gefast upp. En alveg sama hvað, þá held ég áfram alla daga, allan tíma sólarhringsins, allt árið um kring. Ég er kallaður þunglyndi og yfirleitt er besti vinur minn með mér, hann kvíði,“ skrifar Bryndís.

„Oft kem ég í kjölfar áfalla og erfiðleika en stoppa stutt og er víst eðlilegur félagi í lífinu þegar eitthvað bjátar á og er þá oft nefndur depurð. Stundum neita ég að fara og er þá sagður vera geðrænn vandi. Bryndís hefur gert ýmislegt til að losna við mig en ég ákvað snemma á lífsleið hennar að fylgja henni fast. Stundum er ég til friðs og leyfi henni að fá smá pásu frá mér en oft geri ég allt til þess að gera líf hennar erfiðara. Ég læði að henni hugsunum sem eru dimmar og fylli huga hennar af vonleysi og vanmætti.“

Hefur trúað því að hún sé vond manneskja

Segir Bryndís þunglyndið reglulega leiðrétta hana í hvert skipti sem henni dettur í hug að vera ánægð með eitthvað sem hún hefur gert eða ef henni dettur í hug að hugsa jákvætt til sín.

„Ég elska að ráðast á útlit hennar og benda henni á alla þá galla sem ég get fundið og ef ég finn ekki nóg þá bara bý ég þá til.“

Bryndís hefur ávallt haft gaman að því að prjóna, farða og föndra en vegna þunglyndisins telur hún sér trú um að ekkert sem hún geri sé nógu vel gert.

„Við keppumst um að láta hana efast um sjálfa sig og sitt ágæti. Okkur hefur meira að segja tekist að láta hana halda að hún sé vond manneskja, leiðinleg, ljót og að öllu hæfileikalaus. Það hefur samt verið svolítið erfitt að útskýra af hverju hún á vini og mikið af þeim en okkur dettur samt alltaf eitthvað í hug. Okkur hefur líka tekist að fá hana til þess að sleppa því að gera eitthvað sem henni finnst skemmtilegt eins og að fara í brúðkaup eða aðrar veislur þar sem við höfum sagt henni að hún verði fyrir, enginn vilji tala við hana og að hún eigi eftir að verða sér til skammar.“

Átta ára gömul þegar hún reyndi fyrst sjálfsvíg

Segir Bryndís að þunglyndið, kvíðinn og sjálfseyðingarhvötin hafi orðið svo slæmt að hún hafi ekki geta staðið upp úr rúminu.

„Þegar sjálfseyðingarhvötin lætur til sín taka þá er partý og þá skemmtum við okkur virkilega vel. Því miður kemur sjálfseyðingarhvötin ekki eins oft í heimsókn eins og áður en hún hefur fengið Bryndísi til þess að klóra sig til blóðs, skera sig, hýtt sjálfa sig með belti þar til blæðir úr bakinu á henni en einnig hefur hún fengið hana til að reyna að slíta samferð okkar við hana með því að stytta sér aldur. Ég man þegar hún reyndi það fyrst þá var hún 8 ára. Hún tók pilluglas og át allt upp úr því en þar sem þetta var vítamín gerði það ekki mikinn skaða og enn héldum við ferðalagi okkar saman. Að skera sig á púls, leggjast léttklædd úti í vonskuveðri með þá von að frjósa eru tilraunir sem hún reyndi en gafst alltaf upp út af sársauka. Aulinn getur ekki einu sinni gert það rétt en það er kannski allt í lagi, við fáum þá lengri tíma til að kvelja hana.“

Segir Bryndís að sjálfsvíg sé henni ekki ofarlega í huga í dag en að hana dreymi samt um dauðann.

„Um að þessu ljúki í eitt skipti fyrir öll og að við yfirgefum hana, dreymir um að einhver komi og segi þú munt deyja á morgun og þá myndi hún finna til léttis en glætan að við myndum leyfa henni að finna fyrir því. Það sem er líka svo skemmtilegt við samstarf okkar með Bryndísi, þótt að hún vilji ekki vera í neinu samstarfi við okkur og hefur reynt að segja okkur upp ítrekað, er að hún ber grímu sem sínir síkáta gleðibombu sem er ávalt brosandi. En við vitum betur, hún brosir eins og ekkert sé að en að innan erum við að tæra hana upp. Þegar hún leitar út á við og reynir að tala við fólk og segja þeim að hún þjáist og sé virkilega alvarlega veik þá trúa fáir henni og halda jafnvel að hlutirnir séu ekki eins alvarlegir og þeir eru og eru fljótir að gleyma að við förum aldrei frá henni. Það væri hægt að segja að við séum hennar traustustu (ó)vinir, við munum aldrei yfirgefa hana, við munum aldrei sleppa af henni takinu, nú ekki fyrr en hún hefur lokið jarðvistinni hérna.“

Mun ávallt standa upp aftur

Að lokum skrifar Bryndís veikindum sínum bréf á móti þar sem hún tekur það fram að hún muni aldrei gefast upp.

„Þið munið kannski hafa betur í sumum baráttum en ég mun ávalt sigra ykkur aftur. Þið getið beygt mig og haldið mér niðri en ég mun ávalt standa upp aftur. Ég er sigurvegar og ég segi ykkur stríð á hendur enn einu sinni og aftur. Sama hversu oft þið munið ná yfirhöndinni þá skal ég gera allt til þess að klóra mig aftur upp á bakkann. Ég hef lifað af erfiðari hluti og ég mun lifa þetta af líka.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Betri en bæði Lampard og Gerrard – ,,Númer eitt fyrir mér“

Betri en bæði Lampard og Gerrard – ,,Númer eitt fyrir mér“
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Chelsea væri í fallsæti án Palmer

Chelsea væri í fallsæti án Palmer

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.