Bálreiður faðir skrifaði dóttur sinni bréf
Föður lítillar stúlku var gróflega misboðið þegar hann komst að því að ein af vinsælustu leitarniðurstöðunum á Google var:
„Hvernig áttu að halda honum áhugasömum um þig“
Og þau skilaboð sem leitarniðurstöðurnar gáfu. Hann skrifaði því ungri dóttur sinni eftirfarandi bréf sem birtist fyrst á vef The San Francisco Globe en hefur áður birst hér á Bleikt. Bréfið hljóðaði svo:
Nýlega vorum við mamma þín að leita að svörum á Google. Þegar við vorum hálfnuð að slá inn spurninguna kom upp listi frá Google yfir vinsælustu leitirnar í heiminum. Á toppi listans var:
„Hvernig áttu að halda honum áhugasömum um þig“.
Ég varð mjög hissa. Ég kíkti á nokkrar af þeim endalaust mörgum greinum sem fylgdu um hvernig á að vera kynþokkafull og kynferðisleg, hvenær eigi að færa honum bjór eða samloku og hvernig á að láta honum finnast hann vera gáfaður og æðri öðrum.
Og ég varð reiður.
Litla mín, það er ekki, hefur aldrei verið, og verður aldrei þitt hlutverk að „halda honum áhugasömum“.
Elsku dóttur mín, eina hlutverk þitt er að vita innst inni í sál þinni, þeim óhagganlega stað, að þú sért áhugaverð. (Ef þú getur einnig munað að allir aðrir eru einnig áhugaverðir, þá muntu sigra í flestum orrustum lífs þíns. En það bíður annars bréfs.)
Ef þú getur haldið virðingu þinni svona þá verður þú aðlaðandi í mikilvægasta skilningi orðsins, þú mun laða að þér dreng sem er fær um að sýna þér áhuga og vill eyða lífi sínu í að fjárfesta öllum sínum áhuga í þér.
Kæra dóttir mín, ég vil segja þér frá stráknum sem þarf ekki að halda áhugasömum því hann veit að þú ert áhugaverð.
Mér er alveg sama þó hann setji olnboga upp á matarborðið svo lengi sem hann horfir á þig og hvernig þú brettir upp á nefið þegar þú brosir og getur ekki hætt að horfa.
Mér er alveg sama þó hann geti ekki spilað golf með mér svo lengi sem hann getur leikið við börnin sem þið eignist og notið allra þeirra frábæru og pirrandi hliða sem þau erfa frá þér.
Mér er alveg sama þó hann eltist ekki við peninga svo lengi sem hann fylgir hjarta sínu og komi alltaf til þín.
Mér er alveg sama þó hann sé sterkur svo lengi sem hann veitir þér svigrúm til að hlúa að þeim styrkleika sem býr í hjarta þínu.
Mér gæti ekki staðið meira á sama um hvern hann kýs svo lengi sem hann vaknar á morgnana og velur þig og velur að heiðra þig.
Mér er alveg sama um húðlit hans svo lengi sem hann fer blíðum strokum um líf ykkar og sýnir þolinmæði, fórnfýsi, viðkvæmni og blíðu.
Mér er alveg sama hverrar trúar hann er svo lengi sem hann hefur verið alinn upp við að meta hverja stund lífsins að verðleikum og hverja stund með þér og veit að þetta eru heilagar stundir.
Að lokum litla mín, ef þú hnýtur um svona mann og hann og ég eigum ekkert sameiginlegt þá munum við samt eiga mikilvægasta hlutinn sameiginlega:
ÞIG. Og ekkert nema þig.
Því þegar upp er staðið kæra dóttir,
… þá er það eina sem þú átt að þurfa að gera til „að halda honum áhugasömum“ að vera þú.
Að eilífu áhugasamur um þig,
Pabbi.