Það er kannski ekkert sérstaklega góð hugmynd að kaupa sér gamlan vörubíl, gera hann upp og búa í honum hérna á Íslandi þar sem veturinn hér getur verið ansi kaldur. En fyrir þá sem búa í örlítið heitari löndum getur það verið mjög sniðug hugmynd, sérstaklega þar sem það er ekki ódýrt að kaupa sér hús né að ferðast. Þetta getur því verið skemmtilegt fyrir fólk sem langar að gera bæði.
Parið Iona Stewart og Martin Hill eru bæði frá Nottingham hverfinu í Englandi. Þau ákváðu að kaupa sér gamlan vörubíl og gera hann upp svo þau gætu búið í honum og ferðast á sama tíma.
Hugmyndina fengu þau eftir að hafa drukkið nokkra bjóra saman. Daginn eftir héldu þau að hugmyndin færi með timburmönnunum en bæði voru þau staðföst á því að gera þetta. Bored Panda greindi frá því að bíllinn sjálfur hafi kostaðu þau rúmlega hálfa milljón og breytingarnar um þrjár milljónir. Það tók parið í kringum fjóra mánuði að breyta bílnum í heimili á hjólum og í dag ferðast þau um á heimili sínu og skoða heiminn.