Það getur verið gott efni í grín þegar hinir öldruðu komast í nútímatækni samtímans; til dæmis samskiptamiðilinn Twitter.
Víða um veraldarvefinn er að finna hin ótrúlegustu tíst sem sýna heldur betur hvernig ekki skal fara að því að dæla skoðunum inn á samfélagsmiðla – eða hvað?
Myrna Tellingheusen hefur vakið gríðarlega athygli á Twitter og er sögð vera einn hressasti „ömmutístari“ sem fyrirfinnst. Hún hefur verið virk á miðlinum í tæp þrjú ár en hingað til er ósköp lítið vitað um hana. Á hennar prófíl stendur að hún sé búsett í Bandaríkjunum og elski Guð. Sumir efast um að hún sé raunverulega til, að einhver húmoristi stýri reikningnum undir hennar nafni.
Ninety-eight percent of everything is unacceptable.
— Myrna Tellingheusen (@PearlsFromMyrna) April 6, 2018
Á aðganginum leggur Myrna mikið upp úr því að fella niður staðalmyndir af gömlu fólki. Myrna hefur trekkt að yfir 70 þúsund fylgjendur.
Hér er brot af þessum perlum.
„Ég tel það vera skyldu mína að fræða aðra, sérstaklega þegar fólk hefur rangt fyrir sér“
„Það er ekki til betri spenna í lífinu en að opna nýjan glugga á jóladagatali.“
„Aldrei treysta veitingahúsi með klístruðum matseðli“
„Í gamla daga reyktu ekki alvöru karlmenn sígarettur sem gengu á rafhlöðum“
„Á veitingastöðum reyni ég yfirleitt að sitja nálægt innganginum til þess að geta metið alla gesti sem sækja hann.“
„Hátíðirnar eru að eyðileggja fyrir mér vana minn að lesa minningargreinar“
„Skítugur eldhúsvaskur endurspeglar skítuga sál“
„Ég tek alltaf með mér flautu í matvöruverslunina ef einhver skyldi brjóta reglu hraðkassans um fimmtán vörur eða færri.“
„Ekkert ósvikið hátíðarteiti býður upp á jólatónlist sem hefur verið gefin út eftir árið 1969“
„Allir eiga rétt á minni skoðun“