Undanfarnar vikur hafa farðanir Ingibjargar Eyfjarðar vakið athygli á samfélagsmiðlinum Instagram en þær eru gjarnan taldar nokkuð óhefðbundnar og listrænar.
Nýlega greindi Ingibjörg frá því í viðtali við Bleikt, að hún hafi barist við mikinn kvíða og þunglyndi sem hafi hamlað henni mikið í daglegu lífi. Það að setjast niður með förðunarbursta hafi hjálpað henni að komast í gegnum marga erfiða daga.
Þykir henni þó miður að fá á sig gagnrýni frá fylgjendum sem velta því fyrir sér hvernig hún geti setið heima og farðað sig en ekki unnið vinnuna sína. Ingibjörg opnaði sig á Facebook um gagnrýnina og þunglyndið sem fylgir.
„Vá getur allt þetta, en ekki unnið,“ segir Ingibjörg vera skilaboðin sem hún sé að fá.
„Það er bara það sem ég vill að þið sáið á Instagram. Þið sjáið ekki kvíðaköstin, svefnlausu næturnar eða þegar ég þarf að neyða mig út með tárin í augunum og hnullung í maganum, til að fara með börnin í skólann. Þið sjáið mig ekki liggja á sófanum þegar ég kem heim, að óska þess að ég gæti bara dáið því börnin mín eiga betra skilið en gallaða mömmu. Þið sjáið ekki hræðsluna í augunum þegar síminn hringir og ég gæti þurft að útskýra enn einu sinni að ég treysti mér ekki í vinnuna því ég er hrædd um að brotna niður – enn einu sinni.“
Segir Ingibjörg að ekki sé hægt að sjá utan á fólki hvað það sé að ganga í gegnum og að auðvelt sé að blekkjast af myndum á Instagram.
„Þið sjáið heldur ekki léttinn þegar ég sest niður fyrir framan snyrtiborðið, því það þýðir að það er smá tími þar sem ég er ekki að hugsa heldur get sokkið í listina og gleymt hver og hvar ég er. Þó þetta vari bara i klukkutíma eða tvo, þá er þetta það sem bjargar mér. Svo já, ég geri „allt þetta“ ein heima í öryggi heimilisins míns, en „get ekki unnið“ í kringum ótrúlega mikið fólk og enn meira áreiti. Það er bara það sem ég vill að þið sjáið á instagram.“