Ný rannsókn hefur sýnt fram á það að hundar eru í raun og veru ekki jafn klárir og margir hafa viljað halda fram. Rannsóknin sem framkvæmd var í háskólunum í Exeter og Canterbury skoðaði yfir þrjú hundruð ritgerðir um heilastarfsemi dýra ásamt því að bera saman vitsmunalega hæfileika hunda við sambærilegar tegundir svo sem úlfa, birni, ljón og híenur.
Stephen Lea, prófessor við háskólann í Exeter sagði að rannsóknin, sem birt var í tímaritinu Learning & Behaviour og Metro greindi frá, hafi komist að því að margar af þeim rannsóknum sem áður hafi verið gerðar um vitsmunalega hæfileika hunda hafi verið gerðar hundunum í hag. Það er að segja, lesið hafi verið of mikið úr þeirri hegðun sem hundarnir sýndu og margar af rannsóknunum voru gerðar með það markmið að „sanna“ það hvað hundar væru klárir.
„Þeim hefur oft verið líkt við Simpansa og í hvert skipti sem hundur hefur gert eitthvað rétt þá er það túlkað sem eitthvað ótrúlegt. Samt sem áður fundum við það út að í hverju og einu tilfelli þá eru aðrar sambærilegar tegundir sem geta gert að minnsta kosti nákvæmlega það sama og hundurinn í sama verkefni og hann fær,“ segir Stephen Lea.
Dr. Britta Osthaus frá háskólanum í Canterbury segir að „vitsmunalegir hæfileikar hunda séu ekkert óvenjulegir,“ þegar þeir eru bornir saman við aðrar sambærilegar tegundir. Jafnframt tekur hún það fram að eigendur þeirra séu ekki að gera þeim neinn greiða með því að vera að búast við of miklu af þeim.
„Hundar eru bara hundar og við verðum að taka þeirra þarfir og þeirra raunverulegu hæfileika með í myndina þegar við hugsum um það hvernig við eigum að koma fram við þá.
Geitur, svín, höfrungar selir og sæljón eru að minnsta kosti jafn klár dýr og hundar.
Svín eru jafn fær og hundar um að þefa uppi mannfólk.
Kindur, dúfur og simpansar þekkja mannfólk af andliti þeirra.
Kettir þekkja fólk jafn vel og hundar með heyrn sinni.
Asnar og hestar eru jafn góðir og hundar að komst í gegnum hindranir.
Úlfar, þvottabirnir og híenur geta lært að toga í spotta til þess að fá mat.
Höfrungar, simpansar, risa pöndur, tvær tegundir af björnum og sjávar otrar geta notað verkfæri jafn vel og hundar.