Halla Árdísardóttir ákvað að gera sér glaðan dag með kærasta sínum um helgina. Parið ákvað að fara í bíó á myndina Venom, sem þau hafði mikið hlakkað til að sjá. Bíóferðin breyttist þó fljótlega í mikla martröð þar sem bíóhúsið sinnti ekki þeirri skyldu að vara flogaveika við myndinni.
„Myndin er alveg svakalega góð og vel gerð, í rauninni sé ég ekkert eftir því að hafa séð þessa mynd fyrir utan eitt. Einn af mínum nánustu vissi að ég hafði mikinn áhuga á myndinni vegna ástríðu minnar á Marvel. Hann hafði því sent mér skjáskot frá flogaveikri manneskju sem var að kvarta undan því að ekki var varað við atriðum með blikkljósum í myndinni,“ segir Halla.
Halla trúði því ekki að blikkljósin í myndinni væru mjög alvarleg fyrst ekki væri varað við þeim í upphafi myndarinnar og tók hún því ákvörðun um að fara á hana.
„Ég fór á myndina og það var engin viðvörun fyrir flogaveika. Vegna þess þá bjóst ég ekki við því að atriðið væri svona svakalegt. Ég bjóst því við því að það myndi bara hafa áhrif á fólk með miklu verri flogaveiki heldur en ég. En nei, þetta var svakalegt. Ég fékk samstundis verki í höfuðið, augun og ég byrjaði að fá móðu fyrir augun. Það var eins og ég væri að fara að detta út og ég rétt náði að slíta augun frá myndinni. Þá var ég komin með tár í augun því mig verkjaði svo svakalega.“
Halla fór fram og ákvað að kvarta við starfsmenn kvikmyndahússins sem sögðu þá að þar sem starfsmenn væru ekki búnir að sjá myndina þá hefðu þau ekki geta látið vita fyrir fram.
„Hvaða kjaftæði er það? Eftir hlé komu svo tvö atriði í viðbót með svona svakalegum blikkljósum og ég lenti í sömu aðstöðu og langaði mig mest til þess að hlaupa út og biðja til Guðs að ég myndi ekki fá flogakast. Er þetta í lagi? Á ég að búast við þessu alltaf? Er engin virðing borin fyrir fólki með flogaveiki? Heilsan mín skiptir líka máli og ég vil ekki lenda í flogakasti, dái eða jafnvel missa lífið því það var gleymt að vara við blikkljósum.“
Svo virðist vera sem umræða um flogaveiki og umrædda kvikmynd, Venom, sé ekki ný af nálinni. Þannig má til dæmis finna undirskriftarlista á netinu þar sem fólk hvetur Sony Pictures, sem framleiðir Venom, að vara fólk við umræddu atriði. „Okkur tókst að fá Walt Disney til að setja viðvörun fyrir myndina Incredibles 2,“ segir í undirskriftarsöfnunni á vefnum Change.org og á það bent að atriði í Venom geti reynst flogaveikum erfitt. „Við erum ekki að biðja um að neinu verði breytt við sjálfa myndina, bara að þessi viðvörun birtist áður en hún byrjar.“