Kate getur hvorki gengið né lyft upp höndum sínum. Einnig þarf Kate aðstoð við það að anda, en það hefur þó aldrei stöðvað hana í því að gera það sem hún elskar. Að mála.
Kate, sem fæddist með sjaldgæfan vöðvarýrnunarsjúkdóm hefur alltaf haft mikinn áhuga á list og þykir henni sérstaklega skemmtilegt að mála dýr og landslag. Listaverk Kate hafa vakið mikla athygli og hafa meðal annars verið sýnd á sýningum.
Hér fyrir neðan má sjá myndband af Kate við að gera það sem hún elskar:
https://www.facebook.com/yahoonews/videos/288588035290850/