Halló Ragga
Þannig er að ég fæ ekki fullnægingu með kærasta mínum, sama hvað ég reyni. Við keyptum okkur titrara og ég fæ bara fullnægingu með því að nota hann. Hvað á ég að gera? Ég skil þetta ekki alveg og hann er farinn að vera frekar sár því að honum finnst þetta vera allt sér að kenna,en ég er farin að halda að það sé eitthvað að mér. Hvað get ég gert?
Takk fyrir allt,
Unnur
Sæl og blessuð
Ef þú færð fullnægingu með leikfanginu ættir þú endilega að leyfa því að vera með í ástarleikjum þínum og kærastans. Það er mjög algengt að konur eigi við einhvers konar fullnægingarvanda að stríða og stundum er það einmitt svona – fullnægingin fæst bara við einhverjar ákveðnar aðstæður eins og t.d. með hjálp titrara. Það er mjög sjaldgæft að konur fái fullnægingu með því einu að tippið sé sett inn og út nokkrum sinnum, langflestar þurfa meiri og markvissari örvun á sníp, með fingrum, tungu eða sniðugum leikföngum eins og þið skötuhjúin eigið í fórum ykkar. Taktu dótið endilega með í bólið og sýndu kærastanum hvað þér þykir gott, leyfðu honum að hjálpa til og reynið umfram allt að njóta þess að vera saman að leika ykkur frekar en að stressast í kapphlaupi að fullnægingunni.
Gangi þér vel,
Ragga