fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Mikil sorg þegar Birkir féll frá – Ofurhetja sem verður sárt saknað – Nemendur MH stofna minningarsjóð

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 10. október 2018 16:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brosmildur og hæglátur. Vandaður og fallegur. Hæglátur og hafði yfir sér einstaka ró og yfirvegun. Barðist eins og hetja af miklu æðruleysi og bjartsýni. Bjó yfir sterkum persónuleika og miklum þroska. Traustur, vinalegur og mesti ljúflingurinn í fjölskyldunni. Æðrulaus ofurhetja sem lést allt of snemma, aðeins 19 ára gamall. Þannig er mannkostum Birkis Fannars Harðarsonar lýst.

Birkir var nemandi í Menntaskólanum í Hamrahlíð í þrjú ár. Í góðgerðarviku hjá skólanum var ákveðið að styrkja Ljósið og söfnuðust 82 þúsund krónur. Ljósið býður upp á endurhæfingu og stuðning fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Þessi málstaður var ákveðinn til minningar um Birki Fannar Harðarson sem lést nýverið úr krabbameini.

Nemendur MH

Á Facebook síðu nemendafélagsins segir: „Birkir kom í skólann sem nýnemi árið 2015 og eignaðist æðislega vini, fór í útvarpsráð sem hann hafði mjög gaman af og var almennt virkur í félagslífinu. Allir sem þekktu Birki geta staðfest að hann var ótrúlegur strákur og yndisleg manneskja, vildi öllum vel, var hlýr og einlægur og snerti mörg hjörtu í MH.

Í október 2017 fékk hann þær fréttir að hann væri með krabbamein í mjöðm. Hófst þá lyfjameðferð sem hann barðist í gegnum eins og hetja, hann missti aldrei vonina. Þannig var Birkir. Hann hafði vondar fréttir að færa en bætti strax við að hann ætlaði að rústa þessu og láta þetta ekki stoppa sig. Hann var svo hugrakkur og bjartsýnn í gegnum alla meðferðina, en sumt fær ekkert okkar ráðið við.“

Birkir lést þann 22. ágúst síðastliðinn á Krabbameinsdeild Landsspítalans eftir ótrúlega harða baráttu. Á síðu skólans segir:

Einnig stofnaði nemendafélag Menntaskólans við Hamrahlíð styrktarreikning til minningar um Birki sem rennur til Ljóssins. Hann mun vera opinn út skólaárið.

Kennitala: 480491-1499 – Reikningsnúmer: 515-14-413719

Birkis verður sárt saknað. Við vottum öllum syrgjendum samúð. Vinsamlegast styðjið við bakið á sjóðnum ef þið hafið tök á.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.