Heimsfrægi tennisleikarinn Serena Williams ákvað að koma fram ber að ofan fyrir nýjustu herferðina gegn brjóstakrabbameini. Í myndbandinu syngur Serena lagið „I Touch Myself“ með hljómsveitinni Divinyl en aðalsöngkona hljómsveitarinnar, Chrissy Amphlett lést úr brjóstakrabbameini árið 2013.
Serena deildi myndbandinu á Instagram þar sem hún skrifaði:
„Já, þetta setti mig út fyrir þægindarrammann, en ég vildi gera það af því að þetta er málefni sem hefur áhrif á allar konur, af öllum kynþætti, út um allan heim. Það skiptir máli að greina meinið snemma – það bjargar svo mörgum lífum. Ég vona bara að þetta hjálpi konum að muna það.“
Samkvæmt tölum World Health Organisation frá þessu ári, er talið að um 627.000 konur hafi látið lífið vegna brjóstakrabbameins. Það eru um það bil 15% af öllum þeim konum sem hafa tapað baráttuni við krabbamein.