fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Bjargey hætti í megrun og léttist um 35 kíló: „Ég stóð fyrir framan spegilinn daglega og sagði sjálfri mér hversu ömurleg ég væri að vera svona feit“

Aníta Estíva Harðardóttir
Mánudaginn 29. janúar 2018 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjargey Ingólfsdóttir missti heilsuna harkalega eftir margra ára baráttu við aukakílóin. Bjargey hafði prófað alla megrunarkúrana í bókinni og var mjög upptekin af því að skrá og skjalfesta allt sem hún lét ofan í sig og hvað það væri sem hún mátti ekki borða. Dag einn gaf heilsan sig alveg og tók Bjargey þá ákvörðun um að hætta í megrun og fara að vinna í sjálfri sér.

Ég er lifandi sönnun þess að þetta virkar ekki ef hugurinn fylgir ekki með. Ég hef prófað allt. Fjöldann allan af námskeiðum, fjarþjálfun, alla heimsins kúra, danska kúrinn, Herbalife, LKL mataræðið, Carb Nite, farið þrisvar sinnum í stranga einkaþjálfun með tilheyrandi niðurskurðar mataræði að ógleymdum föstum, fastað í tvær vikur, fasta tvo daga í viku, fasta ákveðið marga klukkutíma á dag. Nefndu það ég hef prófað það! Ekki gleyma OA og matarfíkninámskeiðum því það hlaut bara að vera að ég væri matarfíkill með öll þessi aukakíló,

segir Bjargey í einlægri færslu sinni á Bjargeyogco.

Bjargey í dag

Bjargey segir að það hafi verið stór ákvörðun fyrir hana að hætta í megrun. Hætta þessari sjálfspíningu og samviskubiti sem fylgdi hverjum einasta munnbita.

Ég ákvað að hætta að svelta mig af kærleika til mín. Ég var nefnilega mjög góð í að skammta mér lítið af öllu, mér fannst ég ekkert sérstaklega þurfa á því að halda að gefa sjálfri mér tíma, næra sálina eða líkamann. Ég hafði bara nóg að gera í öðru, hugsa um fjölskylduna og börnin mín þrjú, vinnuna og heimilið. En svo kláraðist bara orkan fyrir fullt og allt. Maður getur nefnilega ekki hunsað sjálfan sig til lengdar, það fer eitthvað að gefa sig.

Bjargey greinir frá því að heilsa hennar hafi gefið sig og hún hafi verið gjörsamlega búin á því á líkama og sál.

En hvað varð til þess að ég ákvað að hætta að spá í kílóum, hitaeiningum, detoxi, átaksnámskeiðum, einkaþjálfun, að sleppa sykri, kolvetnum og hinu og þessu? Af því EKKERT af þessu virkar ef þú elskar ekki sjálfan þig!

Bjargey áður en hún léttist

Bjargey segir að dag eftir dag, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár hafi hún verið í vonbrigðum með sjálfa sig vegna tölunnar á vigtinni.

Af hverju gerðist aldrei neitt? Ég píndi mig áfram með þurra salatið og detox te, próteinstykki og hrökkbrauð með gúrku. En þó að ég gerði “allt rétt” gerðist mjög lítið og sjálfsmyndin varð alltaf verri og verri því það hlaut bara að vera að ég væri svona ömurleg fyrst að ég gat ekki haldið mér í kjörþyngd eins og „allir aðrir“.

Dag einn var Bjargey að fara í gegnum gamlar myndir og rakst þar á gamla mynd af sjálfri sér þar sem hún var nýbúin að léttast um 13 kíló.

Þetta var eftir að ég átti fyrsta barnið og ég var stolt af sjálfri mér fyrir að hafa staðið mig svona vel í átakinu. En ég fór að gráta þegar ég sá þessa mynd. Því hjartað mitt var svo brotið á þessum tíma, ég var búin að vera svo virkilega vond við sjálfa mig. Ég hamaðist á hlaupabrettinu í ræktinni og hamraði því inn í hausinn á mér að ég yrði að grennast. Því ef ég væri feit ætti ég jú enga ást skilið. Ég stóð fyrir framan spegilinn daglega og sagði sjálfri mér hversu ömurleg ég væri að vera svona feit.

Á þessum tímapunkti fékk Bjargey nóg. Hún tók ákvörðun um að elska sjálfa sig nákvæmlega eins og hún var þrátt fyrir að hún væri tæp 120 kíló.

Ég ákvað að hætta að spá í því og einbeita mér að því að læra að þykja vænt um sjálfa mig burt séð frá því hvað ég væri mörg kíló. En hvað gerðist þegar ég veitti sjálfri mér athygli, skoðaði hvers ég þarfnaðist og veitti sjálfri mér þá ást og kærleika sem ég átti skilið? Ég áttaði mig á því að ég vildi ekki vera svona þung og langaði til að vera heilbrigð á líkama og sál. Ég leitaði mér hjálpar og ég fór að léttast og núna 2 árum síðar er ég 35 kílóum léttari en 100 kílóum léttari á sálinni.

Bjargey segir að það hafi verið erfitt að viðurkenna það fyrir sjálfri sér að hún þyrfti hjálp til þess að ná að léttast en þegar viðurkenningin var komin hafi hún leitað sér faglegrar aðstoðar.

Ég fór í Heilsuborg og skráði mig í árs prógramm sem heitir Heilsulausnir. Þar tók við mér heilt teymi af frábæru fagfólki, Erla Gerður offitulæknir, þjálfarar, sjúkraþjálfarar, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar og sérfræðingar í hollustu og heilbrigðum lífsstíl. Í Heilsuborg lærði ég ALLT upp á nýtt. Ég hélt til dæmis þegar ég byrjaði í Heilsuborg að ég borðaði allt of mikið. Það kom hins vegar í ljós að ég borðaði allt of lítið og var í rauninni með næringarskort þó ég væri að burðast með 50 aukakíló.

Bjargey fékk ómetanlega hjálp og stuðning í Heilsuborg en þegar hún hafði verið í þjálfun í hálft ár upplifði hún algjört vonleysi.

Ég var mjög veik á þessum tíma enda með marga fylgifiska í farteskinu, vefjagigt, slitgigt, hryggskekkju, brjósklos, endómetríósu, vanvirkan skjaldkirtil og að glíma við afleiðingar af áfallastreitu. En sama hversu erfitt það var fyrir mig að mæta, þá gerði ég það samt. Ég gerði bara eins mikið og ég gat í hvert skipti. Það var svo þegar árið var hálfnað að ég upplifði algjört vonleysi. Allt sem hafði byrjað svo vel gekk ekki eins og ég hefði viljað. Vigtin var stopp og heilsan virkilega slæm. Ég átti erfitt með að hreyfa mig vegna verkja og andlega heilsan hrundi. Ég var komin með erfiðar hugsanir um að kannski væri líf fjölskyldu minnar bara betra án mín. Þá leitaði ég til Erlu Gerðar læknis og spurði hana hvort það væri eitthvað hægt að gera. Eitthvað meira til að hjálpa mér út úr þessum vítahring offitu, verkja og vanlíðan. Það var þá sem hún sagði mér frá aðgerðinni magaermi og að kannski væri það ákjósanlegur kostur í stöðunni með tilliti til þeirra sjúkdóma sem ég væri að glíma við. Það er jú erfiðara að léttast þegar maður er alltaf verkjaður, stirður, á erfitt með svefn og í andlegu ójafnvægi.

Bjargey ákvað að skoða möguleikann á aðgerð en þó vildi hún ekki ganga þá leið nema allt annað væir fullreynt og kláraði hún því árið í Heilsulausnum, tók sér góðan tíma til þess að hugsa málið og hélt áfram að vinna í heilsunni á öllum sviðum.

Haustið 2016 hitti ég síðan Erlu Gerði lækni aftur og bað hana um að sækja um fyrir mig að fara í aðgerðina. Ég vissi að ég þyrfti meiri hjálp og hún stóð mér til boða. Eftir nokkra mánuði fékk ég svo símtal um að ég gæti komið í aðgerðina á LSH í febrúar 2017 sem ég gerði. Það voru þung skref að taka en ég veit það í dag að það er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið fyrir sjálfa mig um ævina. Ég hef öðlast nýtt líf. Ég áttaði mig í rauninni ekki á því hversu ólík ég væri orðin sjálfri mér með öll þessi aukakíló og það er að vissu leyti erfitt fyrir mig að skoða gamlar myndir af mér. Persónulega finnst mér breytingin vera mjög mikil.

Í dag setur Bjargey sjálfa sig í fyrsta sæti og hefur hún lært að heilsa hennar skipti öllu máli.

Bjargey í sumarfríi í Frakklandi árið 2016

Ef ég hef ekki tíma fyrir heilsuna mína í dag, hef ég enga heilsu á morgun.

Bjargey fór að hlusta á sjálfa sig og hvað það væri sem hún þarfnaðist hverju sinni og loksins fór henni að líða miklu betur á líka og sál.

Það sem gerðist þegar mér fór að líða betur er að þá langaði mig líka að hreyfa mig, borða hollari mat og vera besta mögulega útgáfan af sjálfri mér. Það hvetur mig áfram að líða betur og líta betur út því núna veit ég að ég vil ekki verða svona þung aftur. Bara það að skoða gamlar myndir hvetur mig áfram í að halda mínu ferðalagi áfram í átt að heilbrigðara lífi.

Bjargey í sumarfríi á Spáni árið 2017

Bjargey segist í dag vera besta útgáfan af sjálfri sér og að nú sé hún sátt við sjálfa sig nákvæmlega eins og hún er.

P.s. Ég er löngu búin að henda vigtinni

Hægt er að fylgjast með Bjargey á Snapchat undir notandanafninu: Bjargeyogco

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Fyrrum stjóri Manchester United staðfestir viðræður

Fyrrum stjóri Manchester United staðfestir viðræður
433
Fyrir 13 klukkutímum

Mjólkurbikar karla: Valur burstaði FH – KR lenti undir en vann stóran sigur á Ásvöllum

Mjólkurbikar karla: Valur burstaði FH – KR lenti undir en vann stóran sigur á Ásvöllum
433
Fyrir 14 klukkutímum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.