fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Stjörnumerkin: Áramótaspá 2018 – Bogmaður

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 10. janúar 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anna Lóa Ólafsdóttir heldur úti Facebooksíðunni Hamingjuhornið, en það var stofnað árið 2011.

Í Hamingjuhorninu eru fróðlegir og innihaldsríkir pistlar um þætti sem snúa að samskiptum, persónulegum áskorunum og lífsins leyndardómum. Og þar má finna áramótaspá fyrir stjörnumerkin.

Hér er áramótaspáin fyrir Bogmanninn 22. nóvember – 21. desember.

Bogmaður
Kæri bogmaður, byrja á því að segja þér að spáin fyrir þig er mögnuð og 3 stór spil sem komu úr bunkanum. Til að byrja með þá skoða ég árið sem er að líða undir lok. Það mætti segja mér að þú hafir upplifað einhverja togstreitu á árinu og svörin sem þú leitaðir að hafir þú fundið innra með þér. Um var að ræða eitthvað sem var ekki hægt að finna í gegnum rökhugsun, heldur afrakstur djúpratilfinninga sem þú býrð yfir.

Tilfinningarnar sendu þér allskyns skilaboð, já svo stundum þótti þér nóg um. Þarna var um að ræða sterkar tilfinningar eða innsæi, og jafnvel skilaboð frá einhverjum andlega þenkjandi sem þú þurftir að melta. Þá er ekki ólíklegt að draumar þínir á nóttunni hafi stundum virst óskiljanlegir en á öðrum tíma veitt þér ákveðnar vísbendingar.

Það var eitthvað í aðstæðum þínum sem þú varst ekki full meðvitaður um kæri bogmaður, sem þýddi að þetta var tímabil íhugunar og innri vinnu. Þú þarft að trúa því að hlutirnir muni núna ganga upp og þú munt líka vita hvenær á að taka næsta skref. Vertu þolinmóður og mundu að innri leiðbeinendur þínir munu ekki svíkja þig.

En núna ertu hvattur til að slíta þig frá hverju því sem er að halda aftur af þér. Það er rétt eins og þú þurfir hjálp við að losna undan þeirri tilfinningu að þú sért hjálparvana eða losa þig undan ótta sem vekur upp innilokunartilfinningu. Góðu fréttirnar eru þær að takmarkanir sem þú ert að upplifa að hindri að þú komist áfram eru búnar til af þér og því getur þú einn losað þig undan þeim. Neikvæðar hugsanir geta forðað þér frá því að stefna í þá átt sem hjartað langar að fara. Þú þarft því að skoða hvort þú ert að forðast ákveðna þætti af ótta við að mistakast. Þú þarft svo á því að halda á þessum tímapunkti í lífi þínu að sjá líka það jákvæða í stöðunni. Leyfðu andlegum vængjum þínum að bera þig í átt að draumalífinu. Skoðaðu líka hvernig þú ferð með orkuna þína og peninga. Þú þarft að skoða mataræðið og jafnvel fara í einhverskonar hreinsun. Þetta spilar allt saman – innri og ytri veruleiki kallast á og þegar þú tekur til í kringum þig þá minnka áhyggjurnar og þú upplifir færri hindranir.

Árið framundan er mjög spennandi en líklega verða miklar umbreytingar á lífi þínu. Þú ert að segja skilið við aðstæður eða líf sem hentar þér ekki lengur eða hefur hreinlega lokið sínu skeiði. Þú hefur þroskast frá þessum aðstæðum og er tilbúin til að halda áfram. Það er kominn tími fyrir ný ævintýri sem gera það að verkum að þú verður enn vissari um tilgang þinn í lífinu. Þú ert á yndislegum stað – rétt eins og púpan sem er um það bil að breytast í fiðrildi.

Þegar þetta spil kemur inn í líf þitt hafa breytingar verið fyrirsjáanlegar en eins og með allar breytingar þá geta þær tekið á. Tilfinningar, alveg frá miklum létti yfir í eftirsjá og leiða, geta fylgt þessu tímabili. Á þessum tíma er gott að leita í faðminn á einhverjum sem getur tekið á móti og hefur burði til að vera til staðar í gegnum þetta tímabil með samkennd og skilning að leiðarljósi. Notaðu líka tímann til að skoða tilfinningar þína án þess að dæma þær – tilfinningar okkar eru mikilvægur leiðarvísir og við þurfum ekki alltaf að flokka þær í góðar eða vondar – þær bara eru!

Kæri bogmaður – það er bæði kraftur og fegurð í þessum spilum. Þú ert hvattur til að fylgjast með sólarupprás í lífi þínu því það er nýr dagur framundan. Þú ert líka hvattur til að skilja fortíðina eftir þar sem hún á heima.

Kærleikskveðja frá mér!
Anna Lóa

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.