fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Fæddist með augasteina sem fylla út í augað

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 21. september 2018 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefur færst í aukana í dag að fólk versli sér augnlinsur sem láta augasteina þeirra líta út fyrir að vera stærri heldur en þeir í raun eru og jafnvel svo stórir að þeir fylla upp í allt augað.

En fyrir Mehlani Martinez þá er það daglegt brauð að vera með risa stóra augasteina. Mehlani fæddist með sjaldgæft heilkenni sem kallast Axenfeld-Gieger heilkennið.

Þeir sem fæðast með Axenfeld heilkenni hafa óvenjulega stóra augasteina og eru því viðkvæm fyrir ljósi. Heilkennið getur einnig leitt til þess að fólk verði blint í framtíðinni. Hjá sumum eru augasteinarnir ekki staðsettir í miðju auganu og einnig eru dæmi um það að börn fæðist með marga augasteina.

Vegna þess að Mehlani fæddist með heilkennið þá þarf hún alltaf að hafa sólgleraugu þegar hún er úti til þess að vernda augu hennar. Móðir Mehlani hefur miklar áhyggjur af því að dóttir hennar muni fljótlega missa sjónina.

„Fólk segir alltaf við mig að hún sé svo falleg og sæt en ég hef alltaf átt í vandræðum með það því ég veit að fólk tekur eftir einhverju öðruvísi í augunum á henni. Ég hef líka áhyggjur á því þegar önnur börn fara að spyrja hana út í augun hennar, börn geta verið svo vond. En ég hef kennt henni að þegar fólk hrósi henni þá á hún að þakka fyrir sig og brosa,“ segir Mehlani í viðtali sem Metro greindi frá.

Vonar hún að hún geti vakið athygli á heilkenni Mehlani.

„Í hvert skipti sem við förum út þá kemur ókunnugt fólk að henni og hrósar henni fyrir stóru og fallegu augun hennar. Ég á í innri baráttu við mig í hvert skipti þar sem ég veit ekki hvort ég eigi að nefna það að hún sé með þennan galla eða ekki. En ég hef ákveðið að gera það ekki. Ég brosi því bara og segi takk en mér finnst það samt skrítið. Ég vona bara að hún muni alltaf vita hversu falleg hún er.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Nestlé dælir sykri í vörur ætlaðar börnum í fátækum ríkjum

Nestlé dælir sykri í vörur ætlaðar börnum í fátækum ríkjum
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Sjáðu markið: Hólmar kom Val yfir eftir frábæra hornspyrnu Gylfa

Sjáðu markið: Hólmar kom Val yfir eftir frábæra hornspyrnu Gylfa