Nýlega hefur fíkniefnaneysla verið mikið í umræðunni hér á Íslandi og má líklega rekja mikið af umræðunni til myndarinnar Lof mér að falla sem leikstjórinn Baldvin Z frumsýndi á dögunum.
Bíómyndin leyfir áhorfendum að fylgjast með lífi tveggja ungra stúlkna sem verða fíkniefnum að bráð. Myndin sýnir vel hversu slæmur fíkniefnaheimurinn getur verið og hversu mikilvægt það sé fyrir ungt fólk að byrja aldrei að fikta.
Það er erfitt fyrir fólk að ætla sér að neyta fíkniefna í ákveðnu hófi enda eru þau mjög ávanabindandi og þegar einstaklingur hefur tekið fyrsta skrefið í átt að fíkniefnaheiminum er erfitt að ganga til baka. Mörg ungmenni virðast leita í fíkniefni til þess að flýja veruleikann en líkt og Bored Panda greindi frá þá getur verið virkilega erfitt að hætta neyslu. Þessar myndir sýna þó að allt sé hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Bleikt hvetur lesendur sem telja sig eiga í erfiðleikum með fíkniefni eða telji það góða hugmynd að neyta þeirra til þess að flýja erfiðleika að ræða það strax við einhvern nákominn eða leita til læknis.