Margrét Magnúsdóttir hár- og förðunarfræðingur fer yfir það í grein sem birtist á Beautybox.is hvenær snyrtivörur renna út og af hverju við eigum yfirhöfuð að henda þeim.
Margrét starfaði í London í sex ár, áður en hún flutti heim til Íslands. Hún hefur starfað við allskonar skemmtileg verkefni eins og til dæmis Vogue Online, Will.I.Am tónlistarmyndband, Topshop, BBC, tímarit og bíómyndir. Margrét er eftirsótt í brúðkaupsfarðanir, en hún ferðast reglulega erlendis til þess að farða fyrir brúðkaup. Margrét bloggar einnig á Beautybox.is og hefur mikinn áhuga á húðumhirðu, hári, förðun og fallegum hlutum.
Manstu hvenær byrjaðir þú að nota maskarann þinn? Eða hvenær þú keyptir þér nýtt púður? Við eigum það til að geyma snyrtivörur alltof lengi – og það getur verið hættulegt. Við gætum fundið eitthvað inn í skáp og munum ekkert hvenær við opnuðum það.
Málið er að allar snyrtivörur renna út – og oft fyrr en maður heldur. Þegar snyrtivörur verða útrunnar getur formúla vörunar breyst eða bakteríur byrja að byggjast upp í vörunni.
Um daginn birtist frétt um konu sem notaði margra ára gamlan maskara sem hún fann inn í skáp, fékk svo út frá honum sýkingu í augað og mun líklegast verða blind eftir nokkur ár. Vörur sem eru útrunnar geta nefnilega framkallað sýkingar og því ætti algjörlega að forðast að nota vörur sem eru gamlar. Útrunnar vörur geta framkallað allskyns vandamál og bólgur í húðinni, sem getur leitt að roða, bólum, útbrotum og jafnvel blöðrum og sýkingum.
Allar snyrtivörur eru skyldugar til þess að vera með PAO merki en það er lítil mynd á snyrtivörunni af opinni krukku sem á stendur hversu lengi vöruna má nota eftir opnun. Til dæmis getur staðið 3M eða 24M og stendur það þá fyrir að nota má vöruna í 3 mánuði og 24 mánuði eftir opnun.
Svampar (þvegnir eftir hverja notkun)
Maskarar
Sólarvarnir
Michellar vötn
Andlitsvötn
Andlitshreinsar
Augnblýantar
Varalitir
Varablýantar
Augabrúnablýantar
Gloss
Gel eyeliner
Kinnalitir
Augnskuggar
Fljótandi farðar
Rakakrem
Púður
Hyljarar
Naglalökk
Ilmvötn duga í 8 – 10 ár
Þessi tímalengd er aðeins viðmið og alltaf skal kíkja á merkinguna á vörunni. Fylgjast skal með því ef varan hefur breytt um lit, áferð eða lykt og þá þarf að henda henni. Einnig þarf að passa að þvo alla förðunarbursta á nokkurra vikna fresti (eftir hvað þeir eru mikið notaðir) því að þeir fara ofan í förðunarvörurnar.
Nokkur góð ráð
Fylgjast má með Margréti á heimasíðu hennar, Instagram og Snapchat: margretmagnus.
Beautybox.is er einnig á Facebook.