fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Hrönn Bjarna greinir frá besta þynnkubananum

Fagurkerar
Miðvikudaginn 22. ágúst 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég og Sæþór erum að fara að gifta okkur núna í lok ágúst og ég ætla að útbúa smá care-package fyrir gestina mína til að taka heim með sér í lok kvölds til að hjálpa til við heilsuna daginn eftir.

Ég sjálf þoli ekki að vera þunn og er búin að prófa endalaust af ráðum til að sleppa við þessi leiðindi. Ég er loksins komin með algjöra snilldarlausn sem mér finnst virka ótrúlega vel. Ég er búin að kynna þetta fyrir nokkrum vinum mínum og þau geta tekið undir með mér að þetta virkar bara ansi vel.

Þynnkubaninn er semsagt bætiefna- og verkjalyfjakokteill sem er nauðsynlegt að skola niður með einni flösku af Gatorade. Þetta þarf að gera áður en maður fer að sofa kvöldið sem maður er að skemmta sér.

IMG_2687

Þynnkubaninn

  • 2 stk Panodil 500mg
  • 1 stk B vítamín sterkar
  • 1 stk C vítamín sterkar
  • 1 stk D vítamín 2000 iu
  • 1 stk Lóritín
  • 0,5L Gatorade

boisson-energetique-gatorage-

Ég keypti mjög fín lítil hvít álbox á aliexpress til að setja töflurnar í fyrir brúðkaupsgestina mína. Ég er með 150-160 gesti en ákvað bara að gera 100 box þar sem það eru auðvitað aldrei allir sem taka með sér box heim. Ég ætla að setja þau í flotta hvíta körfu og hafa við útganginn ásamt gatorade flöskum í hvítum stórum bölum með klökum sem ég keypti í ILVA.

Ég ætla líka að vera með nokkrar tegundir af samlokum í boði og kók í dós af því það er alltaf mjög gott að borða aðeins líka áður en maður fer að sofa eftir gott partý. Þessu verður öllu raðað fallega upp á borði við útganginn og svo ætla ég að láta prenta fyrir mig flott skilti til að setja við hvert og eitt atriði og svo eitt stórt skilti þar sem fólk er hvatt til að taka heim með sér.

Hlakka til að sýna ykkur betur frá þessu og öðru sem tengist brúðkaupinu næstu vikur. Endilega kíkið á mig á snapchat ef þið viljið sjá allskonar meira skemmtilegt tengt brúðkaupinu @hronnbjarna.

Færslan er skrifuð af Hrönn Bjarna og birtist upphaflega á Fagurkerar.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.