fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Magga Frikka fann ástina í frönskum faðmi

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Laugardaginn 18. ágúst 2018 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Friðriksdóttir, stjórnandi Stjórnmálaspjallsins á Facebook, hefur staðið í ströngu síðustu daga. Í síðustu viku greindi DV frá því að Margrét hefði í ölæði ráðist að Semu Erlu Serdar fyrir utan veitingastað við Grensásveg. Kvaðst Margrét ætla að hætta áfengisneyslu eftir uppákomuna. Upplifun Margrétar og Semu Erlu er með gjörólíkum hætti en Margrét sagði að henni hefði verið gert að yfirgefa veitingastaðinn þar sem Sema Erla væri á leið þangað með vinum sínum en staðurinn er í eigu föður Semu Erlu.

Sagði Margrét að hún hefði stjakað við Semu. Einn heimildarmanna DV hafði aðra sögu að segja og sagði að Margrét hefði blótað Semu í sand og ösku og sagt að erlendur kærasti sinn myndi lúskra á þeim öllum og væri með svarta beltið í karate. Sjálf sagði Sema að Margrét hefði hótað að drepa hana og kýlt hana í öxlina. Sema gerði sér síðan ferð nokkrum dögum síðar niður á lögreglustöð og kærði Margréti sem ætlaði að kæra Semu til baka og vildi meina að hún hefði lúskrað á henni.

Margrét fór svo í kærkomið frí erlendis í vikunni til að hlaða batteríin. Þann sama dag greindi hún frá því að hún væri byrjuð með kærasta sínum, hinum franska Vincent Ravaceh, þeim hinum sama sem kann eitt og annað fyrir sér í karate og dró Margréti í burtu kvöldið örlagaríka á Grensásvegi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hartman í Val
Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Varpa fram kenningu um hvarf Émile sem gæti kollvarpað rannsókninni

Varpa fram kenningu um hvarf Émile sem gæti kollvarpað rannsókninni
Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Hrútur varð hjónum að bana – Nágrönnum mjög brugðið

Hrútur varð hjónum að bana – Nágrönnum mjög brugðið
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Travis Barker gagnrýndur fyrir að birta mynd af Kourtney á klósettinu

Travis Barker gagnrýndur fyrir að birta mynd af Kourtney á klósettinu
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.