Á laugardaginn síðasta komst móðir sex ára gamallar stúlku að því að dóttir hennar hafði pantað sér dót á Amazon fyrir rúmlega 40.000 krónur og lét senda það beint heim að dyrum.
Catherine Lunt sagði í viðtali við HuffPost að hún hafi pantað Barbie dúkku á Amazon fyrir dóttir sína í verðlaun fyrir að hjálpa til við húsverkin. Eftir að Catherine hafði lokið við pöntunina bað Katelyn, dóttir hennar, móður sína um að fá að skoða síðuna til þess að fá að vita hvenær pöntunin kæmi.
„Þegar ég fór út úr herberinu, missti hún sig,“ segir Catherine.
Daginn eftir fór Catherine aftur í tölvuna til þess að skoða aðra pöntun sem hún hafði gert á Amazon og áttaði sig á því að það voru fleiri hlutir á leið til hennar heldur en hún hafði sjálf pantað.
„Ég sá nokkra hluti sem ég þekkti ekki og gat afpantað þá. En svo sá ég að það voru tvær eða þrjár blaðsíður af hlutum sem voru þegar lagðir af stað til okkar.“
Daginn eftir fór fjölskyldan í göngutúr og þegar þau komu til baka voru allir pakkarnir sem Katelyn hafði pantað komnir heim til þeirra.
„Þetta voru aðallega Barbie dúkkur og fylgihlutir, þetta var svo fyndið að við urðum að taka myndir. Svipurinn á henni segir allt sem segja þarf.“
Catherine ætlaði sér að senda pakkana aftur til baka en ákvað fjölskyldan að lokum að gefa þau til spítalans sem Katelyn fæddist á.
„Við ákváðum að gefa þau á barnaspítalann þar sem Katelyn fæddist en hún þurfti að eyða viku þar eftir fæðingu. Katelyn hjálpaði okkur að afhenda pakkana svo ég held að hún hafi lært af reynslunni.“