Mig langaði að fá að létta aðeins af mér því þetta er búið að liggja svolítið á mér, þessar umræður sem ég rekst ósjaldan á „stjúpforeldrar vs. blóðforeldrar“.
Stjúptengsl/blóðtengsl, hver er eiginlega munurinn? Jú jú blóð er blóð en skiptir það máli?
Ég á einn svo kallaðan „stjúppabba“ sem hefur verið í lífi mínu frá 3 ára aldri, í 22 ár, og þvílík gjöf sem það var og er því frábærri mann er ekki hægt að finna.
Fyrsta minningin mín sem ég man eftir er þegar ég hitti hann í fyrsta skipti,held ég allavega. Hann sat við eldhúsborðið með mömmu og ég sat í fanginu á honum og kyssti hann um allt andlitið, mér leist svo vel á hann.
Það stingur mig í hjartað þegar ég sé umræður um stjúpforeldra, að þau séu ekki foreldrar og ættu ekki að vera kölluð mamma eða pabbi því ég á þennan frábæra pabba sem ég lýt svo upp til.
Ég á líka rosa sætan kærasta hann Almar sem er líka svona „stjúppabbi“ og hugsa sér hvað hann Óli minn sé heppinn að eiga TVO pabba!
Almar kom í lífið hans Óla þegar hann var um 2 ára, hefur skipt á honum, lesið fyrir hann fyrir svefn, vaknað með honum, gefið honum að borða, leikið við hann og svo framvegis, allt sem „alvöru“ foreldri gerir, já stjúppabbinn er meira að segja duglegri en alvöru mamman að lesa fyrir hann.
Svo já ég pæli oft hver munurinn sé?
Ég er kannski bara svo heppin að hafa fengið annan pabba í lífið mitt og heppin með kærasta og lýt á þetta öðruvísi, svo ég bara veit ekki svarið við spurningunni minni.
Færslan er skrifuð af Gunni Björnsdóttur og birtist upphaflega á Mæður.com