Kylie Jenner hefur enn og aftur skotist á toppinn á lista yfir þá sem þéna mest á Instagram. Ljóst er að Kylie hefur það ekki slæmt en fyrir tveimur vikum komst hún á lista Forbes um ríkustu konur Ameríku sem hafa þénað sín auðæfi sjálfar.
Fylgjendur Kylie á Instagram telja nú um 112 milljónir manns og er hver auglýst mynd hjá henni metin á 1 milljón bandaríkjadala. Það eru 104.530.000 íslenskar krónur.
Samkvæmt WWD eru leikkonan Selena Gomez og fótboltakappinn Christiano Ronaldo bæði með fleiri fylgjendur heldur en Kylie en auglýsingar þeirra vega samt minna.
Sem dæmi má taka þessa mynd sem Kylie birti sem auglýsingu fyrir fitness merkið Waist Gang Society. Með þessari einu mynd hefur Kylie þénað meiri pening heldur en flest okkar munu ná að þéna yfir ævina. Frekar leiðinlegt, ekki satt?