Flestir foreldrar kannast við það að koma að barninu sínu við það að gera eitthvað sem það á alls ekki að vera að gera. Hvort sem það er að leika sér með klósettburstann eða maka Vaselíni í hárið á sér, þá getur hinn saklausasti leikur barnsins verið versta martröð foreldranna.
Claire Fallon, móðir hins þriggja ára gamla Harrison gekk inn á son sinn um daginn, þar sem hann hafði náð sér í stóra dollu af Nutella.
Einhverra hluta vegna hafði Harrison ekki ákveðið að borða súkkulaðið úr dollunni, heldur maka því á sig allan. Frá toppi, til táar.
Claire fékk áfall þegar hún sá son sinn en hann hafði ekki aðeins makað sjálfan sig út í súkkulaði heldur var það einnig komið á húsgögnin og gólfteppið.
„Fyrst var ég mjög reið við hann og var í áfalli yfir því hvað honum tókst að gera á stuttum tíma. En Harrison hélt áfram að berja í lærin á sér með þeim afleiðingum að Nutella skvettist út um allt. Ég greip hann og setti hann í baðkarið. Sem betur fer náði ég öllu fljótlega af honum,“ segir Claire í samtali við Metro.
Claire og kærasti hennar voru nýlega flutt í íbúðina sem þau búa í og þurfti Claire að ráða sérstaka teppahreinsimenn til þess að ná súkkulaðinu úr gólfteppinu.
„Mín fyrstu viðbrögð voru áhyggjur, við eru ný flutt inn í íbúðina og ég vissi ekki hvernig kærasti minn myndi taka þessu. En í dag get ég ekki annað en hlegið af myndinni, þetta er bráðfyndið.“
Claire segir að héðan í frá muni Nutella dollan verða geymd á efstu hillunni í eldhúsinu.