Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í handbolta verður 39 ára þann 8. ágúst næstkomandi. Þrátt fyrir aldurinn er Guðjón enn að spila með þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen og er skuldbundinn félaginu til 2019.
Guðjón er nú á fullu að undirbúa sig fyrir næsta tímabil og birti myndir á Instagram-síðu sinni í morgun. Ef marka má myndirnar er Guðjón meira en tilbúinn fyrir tímabilið en kappinn er í hörku formi.
https://www.instagram.com/p/BlaS640BOqL/?taken-by=gudjonvalur9