fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Ósk svaf hjá syni vinkonu sinnar

Ritstjórn Bleikt
Laugardaginn 14. júlí 2018 21:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sæl Ragga

Ég er með eftirfarandi spurningu. Er ég ógeðslega léleg manneskja að hafa sofið hjá tvítugum syni vinkonu minnar? Ég er sjálf 36 ára.

Hann fær að búa hjá mér til áramóta en hann er hérna í Reykjavík í skóla. Síðan gerðist það að við sváfum saman og ég upplifði eitt besta kynlíf ævi minnar.

Með kveðju,

Ósk

Hæ Ósk

Fyrst tók ég andköf. Verandi móðir drengs sem er rétt skriðinn yfir tvítugt. Ég ímyndaði mér að hann hefði fengið að búa hjá einhverri vinkonu minni sem hefði kannski þekkt hann frá fæðingu – stundum skipt á honum og passað hann. Einhverri sem hann lítur upp til og tekur mark á og hefur verið hluti af lífi hans um árabil.

Svo hugsaði ég lengur um málið. Þú segir ekki neitt um það hvernig sambandi ykkar hefur verið háttað hingað til. Varstu til staðar í lífi hans þegar hann var lítill strákhnokki eða þekkirðu mömmu hans lítillega frá því að þið voruð saman í menntaskóla? Þarna finnst mér mikill munur á.

Ef hið fyrra á við – að þú hafir verið náinn fjölskylduvinur eða barnfóstran hans – finnst mér þú á siðferðislega mjög gráu svæði. Valdastaðan er ójöfn, og auðveldlega má færa rök fyrir því að þú sért að ganga yfir óæskileg mörk. Það er krípí!

Ef hið síðara á við – að þú hafir ekki þekkt hann sem barn eða verið til staðar í lífi hans – er afstaða mín eitthvað mildari. Hann er fullorðinn, þú líka – mömmu hans þekkirðu, en hei, hann á líka að geta tekið sjálfstæðar ákvarðanir.

Ef um eitt skipti er að ræða, eða að þið farið nokkrum sinnum í rúmið, finnst mér að þið eigið að halda kjafti. Móðir hans hefur rétt á að frétta EKKI af þessu. Sumir hlutir eru bara þess eðlis að það er miklu betra að þegja yfir þeim. Ef þið verðið ástfangin og ákveðið að færa lostann yfir á andlegra plan, þurfið þið að stíga varlega til jarðar. En hei! Verri hlutir hafa nú gerst og í raun er aldursmunurinn ekki það sjokkerandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.