fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Hulda, þriggja barna móðir, varð bráðkvödd aðeins 32 ára gömul: Ástvinir blása til barnahátíðar í minningu hennar

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 13. júlí 2018 09:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 4. júní 2015 lagðist Hulda Hreiðarsdóttir til svefns, hún vaknaði aldrei aftur. Hulda var aðeins 32 ára, fædd 16. júlí 1982 og skildi hún eftir sig þrjú börn á aldrinum 9-15 ára og eiginmann. Útför Huldu fór fram á Kvennadaginn, 19. júní 2015. Hulda var eldhugi og frumkvöðull, sem hafði ríka þörf fyrir að skapa og heimur barna fléttaðist inn í allt hennar líf og starf. Vinir og ættingjar Huldu ákváðu að halda minningu hennar á lofti í þeim anda og núna þremur árum eftir andlát hennar hafa þeir stofnað frumleikafélagið Huldu og fyrsti viðburður félagsins er barnahátíð sem haldin verður í næstu viku í Grundargerðisgarði.

Hulda ásamt eiginmanninum Halldóri Hrafni Jónssyni og börnunum Ólafi Hrafni, Hreiðari Hrafni og Heiðu Björk.

„Hulda var lífið, hlátur, sköpunarkraftur, frásagnagleði og framkvæmdahugur,“ segir Bryndís, systir Huldu, sú yngsta af fjórum systkinum.

„Með Frumleikafélaginu viljum við minnast hennar fyrir allt það góða og uppbyggilega sem hún var og gefa okkur leyfi til að rækta þessa eiginleika í okkur sjálfum, börnum okkar og okkar nánustu. Okkur langar að skapa tækifæri til þess með stórum sem smáum hittingum og viðburðum sem skora á okkur að fara út fyrir kassann, leika okkur í lífinu og njóta þess saman,“ segir Helga systir Huldu.

Verkefnið hlaut styrk frá hverfisjóði Háleitis og Bústaða og Frístundamiðstöð Kringlumýri hefur einnig stutt Frumleikana. Í umsókn um styrk til hverfissjóðsins segir: „Frumleikafélagið Hulda er óformlegt félag vina og ættingja Huldu, eldhuga og frumkvöðuls, fyrir bættum aðstæðum barna til leiks og þroska. Fráfall hennar var mikið áfall fyrir stóran hóp fólks sem teygði sig víða um heim. Fólk sem allmargt vinnur að bættum aðstæðum barna. Hulda setti mark sitt hvar sem hún kom við og má þar nefna frumkvöðlasamfélagið hér heima og skólaumhverfi barna sinna. Hún áorkaði miklu og er missir af þessari kröftugu ungu konu fyrir samfélagið allt.“

Systurnar Hulda, Helga og Bryndís.

Fyrsti viðburður félagsins er barnahátíð

Þann 16. júlí 2018 hefði Hulda orðið 36 ára. Í tilefni dagsins stefnum við á að halda fyrstu Frumleika félagsins í þessu fallega hverfi, þar sem börnin hennar búa. Hægt er að finna upplýsingar um viðburðinn á sérstakri Facebook-síðu. Frumleikarnir verða barnamiðaður viðburður fyrir fjölskylduna alla sem miðar að því að taka þátt í leikjum og leysa óvenjulegar og furðulegar þrautir af ýmsum gerðum. Áhersla verður á að styrkja jákvæða sjálfsmynd, æfa hugrekkið og æfa sig í að það er allt í góðu lagi að gera mistök. En umfram allt er áherslan á að hafa gaman.

Í hverju horni garðsins verður eitthvað skrítið og skemmtilegt til þess að skapa, prófa eða bara njóta. Til að mynda mun Gunnar Aðalsteinn, átta ára snillingur, kenna hátíðargestum að gera blöðrudýr og sirkusungmenni bjóða upp á æfingarsvæði. Veitingar verða í anda slow food og allt vegan. Það verður boðið upp á drykki, grænmeti og ávexti og kveiktur varðeldur til þess að baka sér snúrubrauð á grein. Þeir sem vilja getað laumað sér inn á milli trjánna og dillað sér í takt við tónlist. Jafnvel hitað þar upp fyrir boðhlaup eða reipitog.

„Von okkar í Frumleikafélaginu er að sem flestir komi, slaki á og skemmti sér vel. Allir eru hjartanlega velkomnir,“ segja þær systur.

Systurnar Helga og Bryndís.

Hulda hafði ríka þörf fyrir sköpun bæði í leik og starfi

Hulda ólst upp ásamt systkinum sínum í Reykjabyggð í Mosfellssveit og í næsta húsi bjó fjölskylda föðurbróður þeirra og var mikill samgangur á milli heimilanna. Mæður þeirra voru með saumastofu í bílskúrnum um tíma og feður þeirra voru iðnaðarmenn. „Öll eru þau með ríkt „do it yourself“-viðhorf til allra verka. Þetta hafði mótandi áhrif á Huldu og okkur öll. Hulda var ekki aðeins listræn, hún var einnig framkvæmdakona. Á meðan við strákarnir í götunni spiluðum fótbolta við strákana í næstu götu, skipulagði hún heila Ólympíuleika fyrir alla krakkana í hverfinu með verðlaunapeningum og alles,“ segir Arnar Ingi, bróðir Huldu.

Arnar Ingi og Margrét eiginkona hans.

Hulda hafði ríka þörf fyrir að standa á eigin fótum og henni lá á að komast út í lífið. 18 ára gömul var hún búin að stofna fjölskyldu og 26 ára var hún búin að klára háskólanám, eignast þrjú börn og leggja drögin að fyrirtækinu sínu, FAFU. Fyrirtækið, sem var stofnað árið 2009,  var hennar hugmynd og draumur sem varð að veruleika, vegna vinnusemi hennar, metnað og hæfileika. Árið 2012 var FAFU keypt af  Tom Shea sem hafði vit á að fá Huldu til áframhaldandi starfa og starfaði hún innan nýja fyrirtækisins, FAFUNIA, sem „imaginator“ til síðasta dags. Þeirra samstarf var mjög farsælt og hefur FAFU stækkað, þróast og dafnað með árunum. Hulda var því með annan fótinn í Bretlandi og breiddi út hugmyndafræði sína.

 

Hulda ásamt börnunum sínum Ólafi Hrafni, Hreiðari Hrafni og Heiðu Björk.

Hulda varðveitti alla tíð barnið í sér, leikgleðina, sköpunarkraftinn og lífsgleðina. Í minningargrein um systur sína, segir Arnar Ingi svo frá: „Eitt sinn er hana langaði í sólpall í garðinn, þá smíðaði hún hann sjálf án þess að hika. Hún hafði með dyggri aðstoð föður okkar gert upp bílskúrinn og breytt honum í vinnustofu og var nýbúin að kaupa sér fullt af verkfærum. Þar smíðaði hún prótótýpur af hönnun sinni. Hún gerði alltaf allt sjálf og lét ekkert aftra sér. Þannig var Hulda.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
Eyjan
Fyrir 6 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum
Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf
Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“