Kim Kardashian West og eiginmaður hennar Kanye hafa ávallt valið nokkuð sérstök nöfn á börnin. Það elsta heitir North, miðju barnið heitir Saint og sú yngsta heitir Chicago. Bæði North og Saint hafa einungis fornafn en í gærkvöldi setti Kim mynd af sér og Chicago á Instagram þar sem hún gaf út miðnafn hennar.
Myndinni fylgdi textinn „Chi Noel“ sem gefur til kynna að það sé milli nafn Chicago. Kim er með yfir 113 milljónir fylgjenda og voru margir þeirra hissa og ánægðir með þessa nýju upplýsingar.