fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Hollt og gott heimagert Snickers að hætti Amöndu Cortes

Öskubuska
Laugardaginn 30. júní 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég er virkilega hrifin af þessum framsetningarstíl, þar sem það sést í flest öll hráefni og því getur fólk auðveldlega fengið hugmyndir og útbúið sýnar eigin útgáfur án þess að þurfa endilega að leita uppskriftina uppi. Ég fann þessa uppskrift hjá stelpu sem ég fylgist með á instagram. Notandanafnið hennar er @frommybowl en hún setur mikið inn þar af girnilegum og fallegum mat. Það sem mér finnst einnig mjög heillandi við matarmyndirnar hennar er að maturinn er oftast nær frekar einfaldur og það er ekkert verið að flækja hlutina.

Eftir að ég skrifaði færsluna nokkur lítil skref fyrir umhverfið þá hef ég mikið hugsað til þess að venja mig á að útbúa meira af mat frá grunni til að sleppa enn frekar við umbúðir, t.d. hummus og sósur.

Þegar ég sá þessar hnetustangir hjá henni vissi ég að ég yrði að prófa að búa þær til, enda mikill fyrrum aðdáandi Snickers.

Það er mjög einfalt að útbúa þessar stangir en þær þurfa góðan tíma í frystinum áður en hægt er að hjúpa þær með súkkulaði. Ég beið í ca. hálfan sólarhring, hjúpaði þær og beið í 1-2 klukkutíma til viðbótar með að skera stangirnar og mynda. Eftir á að hyggja hefði verið sniðugt að bíða lengur með að skera þær þar sem fyllingin var enn nokkuð mjúk, en stangirnar voru samt sem áður ljúffengar.

Ég notaði ílangt, mjótt nestisbox undir botninn og fyllinguna en það er þó auðvelt að móta hvoru tveggja saman í annað ílát eða jafnvel á disk (ef þið notið box er sniðugt að hafa bökunarpappír undir svo auðveldara sé að losa deigið).

Hráefni

karamellu fylling

– 1 kúffullur bolli af ferskum döðlum (munið að taka steininn úr)

– 2 mtsk hnetusmjör

– 1 tsk vanillu extrakt

– 1 tsk maca duft (gefur aukna sætu)

– ¼ tsk salt

botninn

– 2/3 bolli hafrar, malaðir í blandara

– ¼ af karamellu fyllingunni

annað

– 1/3 bolli ristaðar salthnetur (ég notaði kasjúhnetur), grófsaxaðar

– 3 plötur af suðusúkkulaði

Hellið sjóðandi vatni yfir döðlurnar í skál og leyfið þeim að mýkjast upp í um 10mín.

Malið rúmlega 2/3 bolla af höfrum í blandara þar til þeir verða að mjöli.

Sigtið vatnið frá döðlunum og setjið þær í matvinnsluvél ásamt hnetusmjöri, vanillu, maca dufti og salti. Blandið þar til fyllingin verður silkimjúk, notið sleif til að ýta hráefnunum niður með fram veggjum skálarinnar ef þess þarf.

Fjarlægið karamellu fyllinguna og leggið til hliðar.

Útbúið botninn með því að blanda saman haframjöli og ¼ af karamellufyllingunni í matvinnsluvél þar til klístrað deig myndast sem helst vel saman.

Þjappið því saman í mjótt og langt ílát eða mótið á disk. Bæti karamellufyllingunni við og mótið. Þrýstið salthnetunum í fyllinguna. Geymið í frysti í hálfan til einn sólarhring.

Skerið deigið í stangir eftir þann tíma og geymið áfram í frysti með súkkulaðið er undirbúið. Bræðið saman 2-3 suðusúkkulaði plötur í vatnsbaði.

Ég notaði tvo gaffla til að velta stöngunum upp úr súkkulaðinu, setti þær á bökunarfilmu og beint inn í frysti. Þær voru svolítið mjúkar og viðkvæmar hjá mér á þessu stigi svo veltið þeim varlega upp úr súkkulaðinu.

Ég beið í 1-2 klst í viðbót með að bera stangirnar fram en þær urðu enn þéttari og girnilegri á degi 2.

Þessar hnetustangir innihalda engar dýraafurðir, engan unninn sykur og eru bara svo dásamlega góðar. Það er virkilega gott að eiga svona nart inn í frysti en ég skar mér yfirleitt hálfa stöng í einu sem var nóg til að seðja nart- og sykurlöngun minni. Þær slógu einnig í gegn hjá kærasta mínum og hlakka ég til að prófa þær á yngri kynslóðinni.

Bitarnir urðu enn þéttari eftir 2 daga í frysti.

Færslan er skrifuð af Amöndu Cortes og birtist upphaflega á Öskubuska.is

Hægt er að fylgjast með Amöndu á Instagram undir notandanafninu: amandasophy

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.