fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Sjáðu nýtt flúr Ellýjar Ármanns – „Ég flýg í lok dags frelsi komdu fagnandi“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 28. júní 2018 20:45

Ellý er hæfileikarík.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir stuttu sögðum við frá því að fjölmiðlakonan Ellý Ármanns hygðist láta húðflúra á sig væng.

„Vængbrotin verið hef og er enn, helvítis hamingjan yfirgaf mig en ég veit hún mig uppi leitar. Langar mest að fljúga úr aðstæðum burt daglega en það er ekki í boði vængjalaus, týnda vænginn minn vinstri fæ loksins á mig varanlega húðflúraðan næstu helgi ef lukka leyfir,“ sagði Ellý þá á Instagramsíðu sinni þar sem hún póstaði jafnframt mynd af flúrinu sem hún hugðist fá sér.

Og í dag var fyrsta „session“ þegar Chip Baskin flúrari hjá Reykjavík Ink teiknaði á hana útlínur vængsins á hægri handlegg Ellýjar, fríhendis án þess að hika eða efast að sögn Ellýjar og þarf hún að mæta tvö skipti í viðbót til að fullkomna flúrið.

„Örninn kemur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar til tals í Biblíunni. Örninn flytur ávallt skilaboð andans; Það eru tengsl mannsins við hið guðdómlega því örninn flýgur hærra en nokkur annar fugl og hefur því meiri yfirsýn en nokkuð annað vængjað dýr. Ef örninn birtist mönnum eru skilboðin skýr; frelsi og hugrekki fyrir viðkomandi til að takast á við framtíðina öflugri en nokkru sinni fyrr. Örninn er táknrænn fyrir mig að mörgu leyti. Fyrir mikilvægi, heiðarleika og sannfæringu hjartans,“ segir Ellý.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Eyjan
Fyrir 6 klukkutímum

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Högg í maga enskra stórliða

Högg í maga enskra stórliða
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Enska úrvalsdeildin segir skilið við það sem Klopp hefur talað fyrir

Enska úrvalsdeildin segir skilið við það sem Klopp hefur talað fyrir

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.