fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Hundur Söru Margrétar flækti sig illa í bælinu: „Hvað hefði orðið af honum ef ég hefði ekki komið snemma heim?“

Aníta Estíva Harðardóttir
Fimmtudaginn 14. júní 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sara Margrét hafði verið slöpp í tvær vikur þegar hún ákvað að fara heim úr vinnunni í hádeginu í gær. Á leiðinni heim var hún með samviskubit yfir því að þurfa að fara úr vinnunni en þegar heim var komið beið hennar hrikalegt atvik sem lét samviskubitið hverfa strax.

„Á leiðinni heim var ég með alveg svakalega mikinn móral yfir þessum aumingjaskap í mér en þegar ég kom heim beið mín eitthvað sem lét mig sko ekki sjá eftir því að hafa farið fyrr úr vinnunni,“ segir Sara Margrét á síðunni Hundasamfélagið á Facebook.

Sat á gólfinu og hágrét

„Hann Loki minn var búinn að stúta nýja bælinu sínu sem ég keypti í Rúmfatalagernum fyrir viku síðan. Hann hafði flækt aðra afturlöppina í tætlunum og sneri svo kyrfilega upp á að blóðflæðið niður í fót hafði stoppað.“

Sara brást hratt við og sótti skæri til þess að klippa Loka lausan.

„Það var ekki auðvelt og hann grét og grét í hvert skipti sem ég snerti hann. Þetta tók svo á að þegar hann var loksins laus þá sat ég á gólfinu og hágrét líka. Ég komst ekki yfir tilhugsunina um hvað hefði orðið af honum ef ég hefði ekki komið snemma heim úr vinnunni.“

Þegar Söru tókst að losa Loka fór hún með hann upp á dýraspítala þar sem hann fékk verkjalyf og bólgueyðandi.

„Núna sefur hann eins og rotaður upp í sófa og vill hvorki mat né vatn. Ég verð að fylgjast vel með honum því að þó það sé ekki slit í hásininni þá er hætta á að það komi drep í löppina þar sem við vitum ekki hversu lengi blóðflæðið var stopp.“

Sara ákvað að deila þessari hörmulegu reynslu sinni í þeirri von um að vara aðra við því að hafa ekki eitthvað í búri hundana á daginn sem þeir gætu tætt og flækt sig í.

Loki sofnaður eftir hörmungar dagsins

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Nýtti sér úrslit vikunnar og skaut fast á gagnrýnendur

Nýtti sér úrslit vikunnar og skaut fast á gagnrýnendur
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum
Hvalur sprakk í tætlur
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Dóttir manns sem var ranglega sakaður um að hafa brotið gegn henni vill vita sannleikann – „Faðir minn jafnaði sig aldrei á þessu“

Dóttir manns sem var ranglega sakaður um að hafa brotið gegn henni vill vita sannleikann – „Faðir minn jafnaði sig aldrei á þessu“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Var „í sjokki“ eftir að hann kom til landsins í desember – „Fyrsta skrefið í því að hugsa um Ísland sem möguleika“

Var „í sjokki“ eftir að hann kom til landsins í desember – „Fyrsta skrefið í því að hugsa um Ísland sem möguleika“
EyjanFastir pennar
Fyrir 7 klukkutímum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Skilningarvitin hætta að starfa í ákveðinni röð þegar fólk er að deyja

Skilningarvitin hætta að starfa í ákveðinni röð þegar fólk er að deyja
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Opinberar smáatriðin í stórfurðulegum samning sem hann og kærastan hafa gert með sér

Opinberar smáatriðin í stórfurðulegum samning sem hann og kærastan hafa gert með sér
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Fór að leita uppi draugahús á Ítalíu með kærastanum – Endaði líf sitt sem „mannleg fórn“

Fór að leita uppi draugahús á Ítalíu með kærastanum – Endaði líf sitt sem „mannleg fórn“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
Eyjan
Fyrir 18 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum
Stöð 2 lækkar verð