fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Þekkir þú merkin á andlegu ofbeldi: ,,Í margar vikur fékk ég ekki að hitta mömmu af því að bensínið var svo dýrt“

Mæður.com
Mánudaginn 11. júní 2018 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mér finnst skipta miklu máli að fólk geri sér grein fyrir því hvað andlegt ofbeldi sé, til að geta áttað sig á því sem fyrst að það sé í gangi. Mér finnst mikið hafa verið talað um andlegt ofbeldi að hálfu maka en eins og flestir vita getur það gerst hvar og hvernær sem er. Gerandinn getur verið besta vinkona eða vinur þinn, foreldrar, yfirmaður eða samstarfsfólk til að nefna dæmi.

Hann/hún öskrar á þig, kallar þig ljótum nöfnum eða niðurlægir þig.
Kannski ætlaði hann/hún ekki að nota þetta orð? Kannski gerði ég hann/hana bara svona pirraða/n, kannski var þetta bara lítið skot sem átti bara vera fyndið? Eða er ég kannski bara of viðkvæm/ur?
Þetta eru hugsanir sem þú gætir fengið, en það var ekkert sem þú gerðir vitlaust. Það er aldrei nein afsökun fyrir því að beita andlegu ofbeldi.

Setur fyrir reglur eða reynir að stjórna útliti þínu.
,,Viltu ekki skipta um föt eða mála þig aðeins?“
,,þú mátt bara fá 3000kr með þér á djammið og þú verður komin heim fyrir 2″
,,þú mátt ekki kaupa þér hárnæringu, þú notar of mikið af henni“

Hótanir
Hann/hún gæti hótað að hætta með þér, reka þig úr vinnu, segja frá leyndarmálum sem þú treystir manneskjunni fyrir. Gerandinn gæti hótað að skemma hluti sem þú átt, hótað að drepa sig ef þú gerir ekki það sem hann vill.

Einangrar þig
Eitt sinn var ég föst á milli steins og sleggju, ég vildi ekki fara því ég hélt ég væri ástfangin en vildi fara því mig langaði að hitta fjölskylduna mína. Í margar vikur fékk ég ekki að hitta mömmu af því að ,,bensínið var svo dýrt.“

Tekur reiðina út á dauðum hlutum
Hann/hún gæti kastað hlutum, myndum, húsgöngum til og frá um heimilið, lamið í vegg eða brotið eitthvað.

„Silent treatment“
Viðkomandi svarar ekki símanum, skilaboðum, svarar ekki þegar þú reynir að tala við hann/hana, yrðir ekki á þig, hunsar þig þar til þú biðst fyrirgefningar, og í mörgum tilfellum dugar ekki að segja það einu sinni eða þú þarft bjóða eitthvað í staðin.

Kennir þér um mistök sem hann/hún gerir.
-Afhverju skemmdir þú þetta?
,,Af því að þú gerðir mig reiða/n“

Ásakar þig um hluti sem þú gerðir ekki.
Ásakar þig um framhjáhald, baktal, meiðyrði og jafnvel lýgur uppá þig eru dæmi um andlegt ofbeldi af þessu tagi. Gerandinn telur sig alltaf vera saklausan og þarft þú því alltaf að biðjast afsökunar eða útskýra fyrir honum/henni.

Lætur þig fá samviskubit.
,,Ég hélt þú vildir frekar vera með mér en að hitta vini/fjölskylduna þína“
,,Ef ég byggi ein/n væri ekki alltaf svona skítugt hérna“
Sumir vinir eiga líka til að eigna sér þig eða láta þig fá samviskubit fyrir að eiga aðra vini.

Setur út á þig.
Hann gæti verið að setja út á útlit, talsmáta þinn eða persónuleika.
Lítil „skot“ á kostnað annara.
,,Ætlaru í alvöru að klæða þig svona?“
,,Þú hlærð asnalega“
,,Brostu frekar með lokaðan munn“
,,Viltu ekki fá þér aðeins minna á diskinn?“
Og ef þig sárnar lætur gerandinn þig fá samviskubit.

Neyðir þig í kynlíf.
,,Ég skal hjálpa þér en þá skuldaru mér drátt“

Lætur þig efast geðheisluna þína.
Gerandinn endurtekur trekk í trekk við þig að þú þurfir að leita þér hjálpar, að þú sért veik/ur á geði eða jafnvel sendir foreldrum, vinum eða fólkinu í kringum þig skilaboð þar sem hann/hún lýsir yfir áhyggjum sínum yfir geðheilsunni þinni.

Fleiri greinar um andlegt ofbeldi er hægt að finna á netinu, eigi þessi dæmi við um þig þá hvet ég þig til þess að leita þér hjálpar. Þetta getur komið fyrir alla, óháð kyni og er alls ekki þér að kenna.

Hægt er að fylgjast með Sögu á Instagram og Snapchat undir notandanafninu: sagaharalds

Færslan birtist upphaflega á Mæður.com

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Tveir látnir eftir umferðarslys í Eyjafirði

Tveir látnir eftir umferðarslys í Eyjafirði
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Fjölskyldufaðirinn lést í sumarfríi – Rangt lík kom heim í kistunni – „Hvar er faðir minn?“

Fjölskyldufaðirinn lést í sumarfríi – Rangt lík kom heim í kistunni – „Hvar er faðir minn?“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Erling Haaland áfram meiddur

Erling Haaland áfram meiddur

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.