fbpx
Miðvikudagur 15.maí 2024

Kanye West greindur með geðhvarfasýki: „Þetta er engin fötlun, ég er ofurhetja!“

Tómas Valgeirsson
Mánudaginn 4. júní 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kanye West hefur verið greindur með geðhvarfasýki samkvæmt textanum við lagið Yikes sem má finna á nýjustu plötunni hans, Ye, en hana gaf rapparinn út í síðustu viku.

Í laginu er textinn svohljóðandi:

„That’s my bipolar shit
That’s my superpower nigga,
ain’t no disability
I’m a superhero!
I’m a superhero!“

Í fyrra staðfesti Kanye við fréttamiðilinn Mirror að hann væri nýgreindur með sjúkdóm og fór rapparinn ekki nánar út í það á þeim tíma. „Ég hef aldrei verið greindur fyrr en nú,“ segir tónlistarmaðurinn sem hefur síðan þá verið ófeiminn við staðreyndirnar.

Um helgina sagði hann við TMZ að hann væri nú hættur á lyfjum en fer hann þá gegn læknisráði þar sem mælt er með þremur töflum á dag í hans tilfelli.

Fyrir nokkrum árum fékk tónlistarmaðurinn taugaáfall og sagðist hafa gengist undir fitusog af þeirri einföldu ástæðu að hann vildi líta vel út fyrir aðdáendur sína. Eftir aðgerðina hafi hann fengið sterk verkjalyf, ópíóíða, sem hann ánetjaðist.

Geðhvarfasýki (e. Bipolar disorder eða manic-depressive disorder) er tiltölulega algengur geðsjúkdómur sem lýsir sér þannig að sjúklingurinn upplifir djúpt þunglyndi og oflæti eða maníu til skiptis. Kanye West er fjarri því að vera eina stórstjarnan til að vera greind með geðhvarfasýki og má meðal annars nefna Mariuh Carey, Catherine Zeta-Jones, Russell Brand og Stephen Fry.

Umrædda lagið frá Kanye má heyra að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sádar ætla að halda áfram að bæta við stjörnum í deildina og nú horfa þeir til Katalóníu

Sádar ætla að halda áfram að bæta við stjörnum í deildina og nú horfa þeir til Katalóníu
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þýska stórveldið mun reyna við Fernandes

Þýska stórveldið mun reyna við Fernandes
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Drengurinn er fundinn heill á húfi

Drengurinn er fundinn heill á húfi
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Lögreglan lýsir eftir Sigurði

Lögreglan lýsir eftir Sigurði
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Birtir myndir eftir að löppin á honum var heftuð saman – Hefur ekki getað unnið vinnuna sína í meira en ár

Birtir myndir eftir að löppin á honum var heftuð saman – Hefur ekki getað unnið vinnuna sína í meira en ár
Eyjan
Fyrir 14 klukkutímum

Þorvaldur segir framboð Katrínar „siðvillu af vondri tegund“ sem sé hægt að stoppa með þessum hætti – „Það er til lausn á þessu“

Þorvaldur segir framboð Katrínar „siðvillu af vondri tegund“ sem sé hægt að stoppa með þessum hætti – „Það er til lausn á þessu“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.