Í fylgiblaði Fréttablaðsins í morgun sem kallast Næring, heilsa og lífsstíll birtist grein sem ber nafnið Flott í bikiníi. Í greininni eru talin upp ráð fyrir konur um það hvernig hægt sé að líta vel út í bikiníi. Samfélagsmiðlar hafa logað í dag vegna þess hve margir hafa hneykslast yfir þessum svokölluðu ráðum.
„Varist saltan mat og sætindi þremur dögum fyrir bikinísýningu. Forðist líka baunir, lauk og brokkolí sem valdið getur uppþembdum maga en borðið í staðin vatnslosandi spínat, sellerí og tómata. Maginn helst sléttur ef borðuð er hnefafylli af mat í einu,“ segir meðal annars í greininni umtöluðu.
Það sem hefur þó valdið hvað mestu áfalli eru lokaorð greinarinnar sem eru á þessa leið:
„Það skiptir máli hvernig setið er í bikiníi. Að sitja á rassinum og draga hnén að sér er einkar falleg stelling. Það lyftir upp mögulegri fitu af mjöðmum og dregur athygli að efri hluta líkamans og hnjám. Gott er að ýta sér aðeins dýpra ofan í sandinn ef hylja á mögulega aukakeppi á rassi og mjöðmum.“
Augljóst er að ráð af þessum toga geta sent slæm skilaboð til kvenna og hafa margir deilt greininni á samfélagsmiðilinn Facebook með þeirri yfirskrift að Fréttablaðið ætti að skammast sín fyrir birtinguna.
Meðfylgjandi mynd er af greininni í heild sinni: