fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Páskastjarnan og tónlistarkonan Guðný María: „Ég er með þetta í genunum“

Steingerður Sonja Þórisdóttir
Sunnudaginn 27. maí 2018 17:00

Guðný María. Nýstirni í hamfarapoppi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er á vordegi sem við ljósmyndari rennum í hlað hjá Guðnýju Maríu. Hún býr í fallegu steinhúsi í Nökkvavogi og  stendur í tröppunum fyrir utan í glæsilegum og glitrandi hvítum kjól, skælbrosandi. „Velkomnar! Komið endilega inn,“ segir hún glaðlega. Okkur Hönnu ljósmyndara fannst það skemmtileg tilviljun að sólageislarnir létu einmitt sjá sig um leið og við stigum út úr bílnum, en þeir hafa verið sjaldséð sjón undanfarið.

„Mikið er þetta fallegur kjóll sem þú ert í,“ segi ég um leið og ég stíg inn á snoturt heimili Guðnýjar.

„Já maður verður að klæða sig upp. Það er svo gaman að vera fínn, það er skemmtilegra,“ svarar hún glaðlega.

Guðný María hefur undanfarið slegið í gegn með skemmtilegum lögum og myndböndum á Youtube. Vinsælasta lagið til þessar er lagið „Okkar okkar páska“ en um 60 þúsund manns hafa horft á myndband lagsins á efnisveitunni. Velgengni lagsins virðist staðfesta þá upphaflegu hugmynd Guðnýjar að páskarnir hafi orðið útundan þegar kemur að íslenskum laga- og textasmíðum.

„Mér finnst svo mikilvægt að hafa lögin mín glaðleg. Margir hugsa að tónlist geti ekki verið list nema henni fylgi einhver sorg. Því er ég ósammála, ég vil koma fólki í gott skap. Ég er búin að gefa út alveg níu lög síðan í desember og það eru að koma tvö lög í viðbót. Það var að koma út lagið „Nei, það var ekki ég“. Það er voða fínt svona fyrir kosningarnar. Ég skil ekki af hverju ég fór ekki í pólitík. Í kvöld er ég einmitt að fara að taka upp myndband við lagið „Ég vinn og vinn og borga skattinn minn,“ segir Guðný kát.

Komu vinsældirnar Guðnýju Maríu á óvart?

„Mér finnst það allavega alveg dásamlegt. En ég er með þetta í genunum eins og þessir snillingar úr Þingeyjarsveitinni, Hörður Áskelsson, Jón Stefánsson og Jón Hlöðver. Við erum mörg úr Þingeyjarsveitinni sem erum með þessi gen og þessa tónlistarhæfileika.“

Fékkst þú tónlistarlegt uppeldi?

„Ég er mest í tónlistinni, fyrir utan ömmu mína. Hún var bara eins og Bylgjan, syngjandi allan daginn. Ég byrjaði líka snemma og var byrjuð að lesa nótur áður en ég byrjaði að lesa bókstafi.“

Hvenær byrjaðir þú að gera þetta svona af alvöru, taka upp lögin þín og gefa út?

„Það byrjaði síðasta sumar. Fyrst var ég svo feimin, ætli það sé ekki út af því að ég er úr sveit. Ég sagði engum að ég syngi og væri að semja. En svo var ég gestanemandi i MIT í lagasmíðum. Þar lærði ég margt áhugavert. Til dæmis varðandi lengd á lögum. „Okkar okkar páska” er minna en ein mínúta en „Nú fer ég í helgarfrí“ er alveg fjórar mínútur. Ég vissi ekki hver reglan væri þar sem ég umgengst ekki mikið af tónlistarfólki. En það gaf mér öryggi að fara í MIT og læra betur um þetta. Í kjölfarið fékk ég mér hljóðkort og byrjaði að taka upp. Ég tek allt upp sjálf,“ segir Guðný.

Verður þú vör við að þú sért orðin fræg kjölfar vinsælda mynbandanna? Er fólk jafnvel byrjað að þekkja þig út á götu?

„Já ég lendi oft í því að vera stoppuð úti á götu. Spila mörg gigg líka og fólk má endilega hafa samband við mig ef það vantar eina hressa í veisluna. Ég samdi um daginn mitt eigið afmælislag og því hef ég verið mikið ráðin í afmæli. Fólk vill að ég syngi það í veislunni.“

Ertu að spila einhvers staðar um Verslunarmannahelgina?

„Nei það er ekki búið að bóka mig enn þannig að við auglýsum hér með að ég er enn laus og alveg til í að spila.“

Með hvaða íslenska tónlistarmanni myndir þú helst vilja starfa?

„Stebba Hilmars, ég væri alveg til í að syngja með honum. Líka Eyþóri, mér finnst hann mjög góður. Veistu, ég hef meira að segja borið þetta undir hann Stebba, sendi honum líka nokkur lög. Hann sagði að hann þyrfti aðeins að hugsa sig um en við vonum það besta,“ svarar hún og hlær.

Starfar þú við eitthvað meðfram tónlistinni?

„Ég var að vinna í íþróttahúsinu í Garðabæ, Ásgarði. En núna er ég mest að vinna sem aukaleikari. Það hjálpaði mér mikið við að losna við feiminina að byrja að leika.“

En hver eru næstu skref hjá Guðnýju?

„Það eru að koma tvö lög inn á Spotify á morgun og svo erum við að fara að taka upp lag í kvöld við lagið „Ég vinn og vinn og borga skattinn minn“. Svo mæli ég með að fólki skelli „Nei það var ekki ég“ á fóninn í kosningapartýjunum. Það passar mjög vel við.“

Er eitthvað á dagskránni að gefa út plötu eða er framtíðin bara á netinu?

„Það er góð spurning. Það eru eiginlega allir hættir að gefa út plötur. Svo ég held bara áfram að gefa út á netinu á meðan það virkar.“

Hvaða ráð hefurðu fyrir þá sem langar að fara út í tónlistina en eru of feimnir?

„Það er bara að byrja. Ég eyddi allt of löngum tíma í að þora ekki. Maður verður bara að slá til. En það bara gleður mig svo að gleðja aðra. Það er svo skemmtilegt að hafa gaman,“ segir hún brosandi.

Að lokum stillir Guðný sér upp fyrir ljósmyndara og segir glettin: ,,Það er betra að taka myndir af mér aðeins lengra frá. Ég er svolítið eins og Húsavík, betri úr fjarlægð,“ segir hún og skellihlær.

Öll lög Guðnýjar Maríu má finna á YouTube hér. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.