Úrvalið í amerískum verslunum er engu líkt og ég hef fallið fyrir nokkrum vörum sem ég hef sjaldan eða aldrei fundið hér heima sem ég hef kippt með mér heim frá Ameríku reglulega.
Mér er nánast sama um búðarölt í fataverslunum en gefðu mér góðan tíma og supermarkað erlendis og ég get verið þar tímunum saman að skoða.
Hérna eru nokkrar uppáhalds vörur sem ég kaupi. Einhverjar eru hugsanlega til hérna heima en ef þið eruð á leiðinni til Ameríku mæli ég með því að kíkja á þessar vörur.
Þessa dressingu frá Hidden Valley kaupi ég alltaf, hún fæst í nokkrum útgáfum, low fat, fat free, original og með allskyns auka bragði. Æðisleg á Cesar salat og með kjúklingavængjum
Þessar mini tortillur eru þær bestu sem ég hef smakkað frá Mission, þykkar og bragðgóðar.
Það er ekkert mál að setja þær í frystinn og annað sniðugt ráð er að nota þær í mini pizzugerð fyrir börnin eða veisluna
MMMM… Oreo lovers verða ekki sviknir af þessari snilld. 6 pakkar af kökum með lítilli dýfu. Örugglega vinsælt í afmæli eða lautarferð.
Margir þekkja fiskakexið góða en í ameríkunni stóru er úrvalið svakalegt! Hvað bragð má bjóða þér? Pizza? Pretzel? Litríka? Cheddar? Prinsessu (hvernig sem það bragðast svosem :/ )?
Babybel ostinn þekkja margir en hvað ef ég segði við ykkur að í stórmörkuðum er hægt að fá allskonar tegundir af babybel :O
Gouda, Mozzarella, Cheddar,Light ?
Snilld fyrir krakkana í nesti ?
Ein af mínum uppáhalds sósum í matargerð er þessi Orange Chicken sósa frá Panda Express. Dísæt og ljúffeng og góð svona spari!
Boars Head Chorizo pyslunar eru svakalega góðar og koma vel innpakkaðar. Í miklu uppáhaldi með mexíkó osti eða camenbert eða einar og sér.
Þessir einnota tannburstar eru algjör snilld í veskið og eru með innbyggðu tannkremi og tannstöngli. Max fresh on the go eru orð með sönnu!
Svona afþví að við erum í Fresh breath deildinni þá eru þessi myntublöð mesta snilld í heimi. Fer ekkert fyrir þeim og maður setur þau uppí góminn. Ekkert smjatt, ekkert tyggjó, bara ofur ferskur andardráttur ? ?
Þessum blautþurrkum fyrir swiffer moppuna má alls ekkiu gleyma en þetta er algjör snilld fyrir dagleg þrif og einfalt í notkun. Það er græn lína á þeim úr aðeins grófari efni sem hentar vel til að taka harða bletti án þess að rispa gólfið.
Ég sýni oft nýjar vörur á snappinu mínu ef ég finn eitthvað sniðugt í Ameríku og tek með heim.
Notendanafnið mitt er: Hannsythora
Færslan birtist upphaflega á Fagurkerar.is