fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Ingibjörg vill minnka baktal: „Smásálir tala um fólk, aðrir tala um málefni“

Öskubuska
Miðvikudaginn 16. maí 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hver er þessi Gróa? Flestir kannast við hana, þegar saumaklúbbar, vinahópar, kvenfélög eða meira að segja kallarnir á kaffistofunni í vinnunni hittast, þá er hún fyrst á staðinn. Hún er fyrst á staðinn með allt heitasta slúðrið, hver sagði þetta eða gerði hitt, þetta virðist oftast snúast upp í keppni – hver er með mest krassandi sögurnar.

Eyðum megninu af lífinu í að velta öðru fólki fyrir okkur

Við höfum öll tekið þátt í að fóðra Gróu á leiti á einn eða annan hátt og ég líklega oftar en margir. Oft án þess að taka eftir því, þetta er bara einhvern veginn svona, maður hittir einhvern og maður talar um fólk – eftir allt saman þá eyðum við megninu af okkar lífi virðist vera í að pæla í öðru fólki, ekkert alltaf illa meint.

En oft – of oft er það eingöngu til að setja svartan blett á einstaklinginn af einhverri ástæðu. Gróa sér líka til þess að eitthvað sem byrjar sem örsmá óspennandi saga – breytist yfir í krassandi spennusögu frá manni til manns. Flestir enda þó yfirleitt sögurnar á „án þess að ég viti nokkuð um það” eða „eða svo heyrði ég bara” – og þá kemur aðal spurningin, ef þú veist ekkert um það, af hverju ertu þá að tala um það? Af hverju ertu að setja þetta út í umheiminn ef þú hefur enga staðfestingu? Bara til að hafa eitthvað til að tala um? Ef þú vilt svona mikið vita um hagi næsta manns, af hverju ekki að spyrja þá manneskju beint? Er það því við erum hrædd við það? Hrædd við að sýna manneskjunni nákvæmlega hversu hnýsin við erum um líf annarra?

Líklega er þetta óöryggi

Gróa nefnilega sér til þess að það er miklu meira spennandi að tala um fólk bak við það, það er miklu meira spennandi að velta fyrir sér, fylla upp í eyðurnar og giska. Hversu rangt sem það er.

Ég las í dag svipaðan pistil frá honum Einari hjá Alpha Gym og í honum stóð;

„Eftir að ég fór að umkringja mig einstaklingum sem njóta almennt meiri velgengni tók ég eftir að ég heyri minna og minna slúður. Ég heyri meira um hugmyndir, spennandi verkefni, framtíðina, áhugaverðar kenningar, hvernig á að ná meiri árangri eða afköstum o.s.frv.. Þegar ég er svo í kringum fólk sem leggur sig ekki eins mikið fram við að ná árangri í lífinu eða verða besta útgáfan af sjálfum sér fer ég aftur að heyra meira slúður. Líklega er þetta óöryggi. Fólki líður betur með sjálfan sig á meðan það segir frá óförum annara.”

Sýna börnunum betra fordæmi

Og ég held að það sé akkúrat málið. Ég veit allavegana fyrir mitt leiti, að þá ætla ég að leggja mig fram við að verða betri manneskja, sýna börnunum mínum betra fordæmi en það að velta fyrir mér hvað einhver annar gerði eða gerði ekki án þess að vita nokkurn skapaðan hlut um það. Gróa er ekki velkomin hingað lengur – Gróa er smásál sem á ekkert erindi í mitt líf og smásálir tala um fólk, aðrir tala um málefni.

Ég mæli með að aðrir geri það sama.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Stuðningsmenn Liverpool súpa hveljur – Af hverju er húsið hans komið á sölu?

Stuðningsmenn Liverpool súpa hveljur – Af hverju er húsið hans komið á sölu?
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Guðmundur H. Garðarsson er látinn

Guðmundur H. Garðarsson er látinn
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.