Elvis er átta ára gamall heimilisköttur sem býr hjá eigendum sínum á Kjalarnesi. Elvis er virkilega fjörugur og uppátækja samur köttur en þegar hann var 2 ára gamall lærði hann að opna glugga sjálfur.
„Við fengum hann þegar við bjuggum á Egilsstöðum þá var hann átta vikna gamall. Honum hafði verið skilað af annarri fjölskyldu þar sem hann þótti of fjörugur,“ segir eigandi Elvis og hlær.
Eins og fyrr sagði, lærði Elvis að opna glugga þegar hann var tveggja ára gamall og lætur hann ekkert stoppa sig í því að komast leiðar sinnar.
„Í fyrsta skiptið sem þetta gerðist vorum við að koma heim af næturvakt einn morguninn og Elvis var úti. Þetta gerðist svo í nokkur skipti áður en við áttuðum okkur á því hvað var í gangi.“
Hjónin höfðu bæði haldið því fram að annað hvort þeirra hefði gleymt að loka glugganum fyrir nóttina en kettirnir þeirra fá ekki að vera úti á nóttunni.
„Þessi týpa af glugga sem við erum með núna er þriðja tegundin af gluggum sem hann lærir að opna. Við höfum alltaf sett krækjur en hann er búinn að læra að losa þær líka.“
Eigandi Elvis segir hann algjöran dekurkall en að í honum blundi þó örlítill villiköttur.
„Svona þegar það hentar honum. Hann er skuggalega klár, það tekur hann um 2-3 skipti að velta fyrir sér læsingunum og prófa sig áfram áður en hann kemst út. Hann á kisubróður sem er ellefu ára og sá opnar skúffur og skápa svo það er mikill verkfræðingur í þeim báðum þó sá eldri nenni ekki að standa í því að opna gluggana.“
Meðylgjandi myndband er af Elvis opna glugga og yfirgefa bygginguna.