Ég safna ekki mörgum hlutum, en ég er mjög veik fyrir múmín bollum. Mér finnst þeir svo ótrúlega litríkir og fallegir og þeir lífga mikið upp á svarta og hvíta eldhúsið mitt.
Ég var alltaf með þá inni í glerskápnum mínum, en svo þurfti ég að nýta skápinn í annað, svo að ég varð að finna lausn fyrir alla fallegu bollana mína. Ég ákvað að best væri eflaust að hafa þá í eldhúsinu, þar sem ég nota þá mjög mikið, en ég vildi samt sem áður ekki loka þá inni í eldhússkáp.
Ég er með tvær stórar opnar hillur í eldhúsinu sem ég hef aðallega notað fyrir ýmiskonar punt og ákvað að það væri eflaust best að hafa þá þar. En sama hvernig ég raðaði þeim í hillurnar, það kom aldrei nógu vel út. Þá datt okkur hjónum í hug að það kæmi örugglega vel út að setja einhverskonar slá undir hillurnar og hengja þá þar. Við fórum á stúfana og fundum ekki nógu langa stöng, þar sem stöngin þurfti að vera 2 metrar að lengd til að ná alveg veggja á milli.
Í þeim verslunum sem við fórum í var bara hægt að fá nokkrar styttri stangir sem hægt var að skeyta saman. Við vildum ekki hafa samskeyti, svo að við brugðum á það ráð að kaupa ryðfría stálstöng sem við styttum niður í rétta lengd og spreyuðum svo svarta.
Í IKEA var hægt að kaupa litla stöng sem fylgdu tvær festingar. En þar sem stöngin okkar er heilir 2 metrar, þá þurftum við þrjár festingar, svo að hún myndi ekki svigna í miðjunni. Svo að úr varð að kaupa tvær pakningar af FINTORP stöng til að fá þær festingar sem okkur vantaði.
Við erum mjög ánægð með útkomuna og frábært að finna svona einfalda og stílhreina lausn fyrir fallegu bollana mína.