fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

Swingpartý í veglegu einbýlishúsi í Reykjavík – Smokkar, sleipiefni, nuddbekkur og heitur pottur

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. apríl 2018 14:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnheiður Eiríksdóttir skrifar: 
„Húrra ég er ein þeirra útvöldu!“ – hugsaði ég með bros á vör og kitl í maga þegar mér barst tilkynning þess efnis að umsókn mín um inngöngu hefði verið samþykkt. Nei, ég var ekki að sækja um skólavist í Yale, og ekki heldur um hreindýr til að skjóta eða skólagarð til að rækta rófur í sumar. Ég hafði sótt um inngöngu í swingpartí í Reykjavík, en slíkir viðburðir eru álíka sjaldgæfir og ályktanir ríkisstjórnarinnar gegn stríðsrekstri stórvelda sem bitna á borgurum Mið-Austurlanda.

Aldrei fyrr hafði ég mætt í stórt boð af þessu tagi á Íslandi, en ef til vill muna lesendur eftir frásögnum mínum af heimsóknum í skylda klúbba erlendis, þar á meðal Fata Morgana sem er staðsettur um 20 mínútur fyrir utan miðborg Amsterdam og þykir ansi góður. Hér er fyrsta greinin af þremur.

Sex hundruð Íslendingar á SDC

Áður en þið rjúkið inn á rafræna Reykjavík til að senda inn umsókn fyrir næsta partí er vert að geta þess að málið er ekki svo einfalt. Viðburður sem þessi er tilkynntur á samfélagsvefnum www.sdc.com, en skammstöfunin stendur fyrir Swingers Dating Club. Ætla má að flestir Íslendingar sem stunda swing, eða dreymir um það, séu skráðir á vefinn. Á heimsvísu eru yfir þrjár milljónir notenda skráðir á vefinn, Íslendingar eru um 600 en þeim hefur fjölgað hratt síðustu misseri.

Ragnheiður Eiríksdóttir

Það eru samt nokkrar glóandi gjarðir sem nauðsynlegt er að stökkva gegnum áður en hægt er að eiga von á sjóðheitu boðskorti í swingpartí í pósthólfið á SDC.

Til að nota vefinn þarf að búa til prófíl, hann getur verið fyrir einstakling eða par. Upplýsingar um útlit, reynslu, væntingar og vilja eru fylltar út, ásamt því sem myndum er hlaðið upp á vefinn. Ókeypis aðgangur býður upp á takmarkaða möguleika, en fyrir fólk sem er alvara er kostnaður ekki sérlega mikill, mánuðurinn kostar álíka mikið og hádegistilboð fyrir einn á lekkerum veitingastað, og heilt ár kostar hér um bil það sama og miði á söngleik og strætófargjald í leikhúsið og til baka. Virknin á vefnum er mikil – þar eru hópar, viðburðir auglýstir, sólarlandaferðir, skíðaferðir, siglingar (já allt sérstaklega fyrir fólk í lífsstílnum), spjallsvæði, greinar og ég er örugglega að gleyma svona tuttugu hlutum.

Sögur um slæma hegðun ferðast hratt

Margir nýta sér ferðatilkynningar og stefnumótaóskir – þannig er hægt að komast í samband við fólk í svipuðum hugleiðingum til dæmis ef ráðgert er að eyða heitri helgi á Akureyri eða í Aberdeen. Einnig er bráðnauðsynlegt að hafa aðgang að upplýsingum og umsögnum um klúbba ef heimsóknir eru ráðgerðar á nýjum stöðum.

Í lífsstílnum gilda ákveðnar reglur sem vert er að kynna sér, því þó að þagmælska ríki almennt í samfélaginu ferðast fiskisagan um dólgshátt eða slæma hegðun á ógnarhraða milli fólks. Á SDC er afskaplega mikilvægt að notendur gefi hver öðrum umsagnir – því fleiri jákvæðar umsagnir og því skýrari upplýsingar, því meiri líkur eru á að þar fari fólk sem er alvara og þess virði að hitta. Að sjálfsögðu er eitthvað um gerviprófíla og bull á vef sem þessum, en stjórnendur leggja sig fram við að gera notkun hans passlega flókna til að tröllalæti séu sem minnst.

Kynlífsróla er staðalbúnaður

En aftur að gleðskapnum í Reykjavík. Tæplega 40 manns hlutu náð fyrir augum skipuleggjenda, þar af þrír einhyrningar (stakar konur) og þrjú stök naut (karlmenn), restin pör. Mun færri komust að en vildu. Veislan var haldin í veglegu einbýlishúsi á nokkrum hæðum, en meðal annars var búið að útbúa leiksvæði, hengja upp kynlífsrólu og skella upp nuddbekk. Heitur pottur og gufubað ásamt sturtum voru einnig á staðnum. Kertaljós og kósý tónlist, og nóg af krókum og kimum fyrir skraf, kelerí og aðra lostaleiki.

Gestgjafar báðu kvenkyns gesti um að mæta í lekkerum og passlega eggjandi klæðum og hælum, en karlmenn voru vinsamlega beðnir um að vera snyrtilegir til fara. Boðið var upp á freyðivín í fordrykk og léttar veitingar á föstu formi, en þeir sem kusu að drekka meira komu með eigið áfengi aukreitis. Gestir áttu einnig að mæta með eigin handklæði, sleipiefni, smokka og aðra aukahluti eftir geðþótta. Veislan hófst klukkan 21.30 á föstudagskvöldi og stóð fram undir morgunn.

Í næsta blaði mun ég ræða við gestgjafana ásamt nokkrum gestum úr veislunni. Þar til hvet ég áhugasama til að kynna sér lífsstílinn til dæmis með grúski á internetinu.

Orðskýringar

Swing – orðið hefur oft verið ranglega þýtt „makaskipti“ á íslensku. Ranglega, því orðið takmarkast við að makar skiptist á mökum með öðrum mökum… Swing er meira en það því um er að ræða áhugamál eða athæfi sem snýst um rómantísk eða kynferðisleg samskipti fullorðins fólks. Kannski mætti kalla það samþykkt fjöllyndi, í jákvæðustu merkingu þeirra orða.

Lífsstíll (e. lifestyle) – orðið sem flestum þykir þægilegast að nota um áhugamálið. Sniðugt því orðinu má skjóta inn í sakleysislegar samræður ef þörf er á að komast að því hvort viðmælandi hafi þekkingu eða áhuga á swingi.

Einhyrningur (e. unicorn) – stök kona sem stundar swing. Stakar konur eru nánast undantekningarlaust velkomnar í partí og klúbba. Orðið gefur til kynna að þær eru sjaldgæfar og eftirsóttar. Merkilegt er að það er ekki til orð yfir stakan karlmann sem stundar lífsstílinn – stakir karlmenn hafa því miður á sér slæmt orð í þessu samhengi fyrir að láta gredduna hlaupa með sig í gönur.

Naut (e. bull) – stakur karlmaður með stóran getnaðarlim sem hefur samfarir við konu gjarnan á meðan maður hennar fylgist með.

 

Raggaeiriks.com

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.