fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Ingibjörg Eyfjörð útskýrir hvernig hún tekur góðar myndir með síma

Öskubuska
Sunnudaginn 25. mars 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef undanfarið mikið verið spurð útí það hvernig myndavél ég nota til að taka myndir, hver tekur myndirnar af mér, fyrir mig og svo framvegis svo mér datt í hug að setja þetta bara allt saman í eina færslu. Svarið er einfalt, það er bara einn sem á aðal heiðurinn af öllum myndunum mínum.

Síminn minn. 

Frá því að ég byrjaði að taka jafn mikið af myndum og ég geri þá hef ég alltaf valið mér síma út frá því hvernig myndavél hann er með. Aðallega því ég er of löt til að burðast með myndavél OG síma og finnst bara lang hentugast að geta bara vippað símanum upp og bam – at the click of a button er ég búin að taka mynd og henda henni á instagram. Síminn sem ég er með núna er hinn frábæri LG G6 en það sem fólk áttar sig svo oft ekki á er að maður getur tekið FRÁBÆRAR myndir á nánast hvaða síma sem er. Það auðvitað kemur ekkert í staðin fyrir góðar myndavélar eða ljósmyndara sem kunna sitt fag og eiga sínar græjur (og við vitum öll að ég er háð því að fara í myndatökur hjá henni Halldóru minni!).

Processed with VSCO with x1 preset

 

Þegar ég tek myndir pæli ég ótrúlega mikið í því hvernig birtan er, því birtan skiptir svooo miklu máli. Það er alls ekkert svo ólíklegt ef þið labbið einhverntímann framhjá húsinu mínu að þið sjáið mig við gluggann inní stofu að taka selfies en þar er besta birtan milli hálf 3 og hálf 4 á daginn. Búin að stúdera þetta sko. Þegar ég er búin að taka myndir er ég heldur ekkert að breyta þeim að öðru leiti en fikta í birtustillingunum sem ég get yfirleitt gert bara inní instagram forritinu sjálfu, hef 3 eða 4 notað forrit sem heitir Airbrush en er ekkert allt of hrifin af því (ég fæ reglulega frunsur og sorry memmig en mér finnst bara ekki kúl að hafa risa frunsu á myndum) og svo nota ég VCSO til að setja svart hvítann filter yfir myndir en mér finnst fallegasti svart hvíti filterinn inní því forriti.

Processed with VSCO with x1 preset

Pabbi átti svo gamlann þrífót (sem ég veit ekki hvaðan kom því að ég efast um að pabbi hafi nokkurntímann notað svoleiðis) sem ég “fékk lánaðann” (lesist; stal með leyfi) og reif í sundur selfie stöngina mína og púslaði þessu einhvernveginn saman þannig að ég gæti nú sett á self timer og tekið myndir.

Þetta er ekki flóknara en það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Tók myndir upp undir kjóla og pils 107 kvenna

Tók myndir upp undir kjóla og pils 107 kvenna
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.