„Leikfangahestaveðreiðar“ (e. hobby-horsing) er ný tómstundaiðja þar sem fólk er með leikfangahest á priki á milli fótleggjanna og hleypur um eins og hestar. Það er að sjálfsögðu keppt í þessari grein og er það gert fyrir framan dómara.
Þessi skemmtilega íþróttagrein hefur dregið að sér meira en 10 þúsund iðkendur og fylgjendur, þá er aðeins verið að ræða um í Finnlandi. Heimildarmynd er í bígerð um leikfangahestaveðreiðar, Hobbyhorse Revolution. Hægt er að horfa á stikluna fyrir myndina hér fyrir neðan.
Í næsta mánuði keppa þeir bestu um meistaratitillinn í Helsinki. Hvað segið þið kæru lesendur, ætlið þið að fylgjast með keppninni?