fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Lára og Tinna opna súkkulaðisetur í hjarta borgarinnar

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 19. desember 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonurnar Lára Rúnarsdóttir og Tinna Sverrisdóttir hafa nú stofnað fyrirtækið ANDAGIFT en ANDAGIFT er hreyfing í átt að meiri sjálfsást og sjálfsmildi. Þær hafa unnið saman að súkkulaðiseremóníum nú í nokkra mánuði og hafa viðtökurnar verið vonum framar.

Í janúar opna þær Súkkulaðisetur á Rauðarárstíg 1 þar sem boðið verður upp á tónheilun, djúpslökun, hugleiðslu, jóga, súkkulaðiseremóníur og allskyns „gúrme“ fyrir líkama og sál. Einnig munu þær bjóða upp á einkatíma, námskeið og einstaka viðburði.

Þetta er allra fyrsta Súkkulaðisetur Reykjavíkurborgar og hefur það að sérstöðu að kakóplantan er leiðandi í allri vinnu sem þar fer fram. Súkkulaðið sem notast er við er 100% hreint, handunnið kakó frá regnskógum Guatemala og hefur verið notað sem hjartaopnandi lyf af Maya indjánum svo öldum skiptir.

 

„Við upplifum að við sem samfélag séum að ganga í gegnum miklar breytingar í kjölfarið á þeim byltingum sem hafa hreyft við öllu undanfarna mánuði, þar má nefna #metoo, #égerekitabú, #höfumhátt og svo framvegis. Því finnst okkur mikilvægt að opna rými þar sem leyfi er til að staldra ögn við, tengjast eigin hjarta og líta inn á við. Rými til að anda, endurspegla, hlaða batteríin og heila. Svo ANDAGIFT Súkkulaðisetur verður griðastaður þar sem auðvelt verður að gefa sér frí frá amstri hversdagsins og njóta ilmandi súkkulaðibolla í róandi og hlýju umhverfi,“ segir Lára.

 

„Þetta er okkur hjartans verkefni og það hefur verið algjörlega stórkostlegt að vinna saman að þessu hingað til og nú leitum við eftir stuðningi svo þessi draumur megi verða að veruleika,“ segir Tinna.

 

Á Karolinafund býðst öllum að taka þátt í hreyfingunni og með því að styrkja verkefnið gefur þú þér um leið gjöf sem tryggir þér gæðastund í ANDAGIFT. „Við stefnum á að ná takmarkinu á þremur vikum og því hvetjum við alla til þess að taka þátt og þannig næla sér í gúmmelaði fyrir líkama og sál á nýju ári.“

 

Söfnunin er opin til 12. janúar 2018 og má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.