Halla María Sveinsdóttir hefur rekið staðinn Hjá Höllu í fimm ár, þar af tvö ár á núverandi stað að Víkurbraut 62, Grindavík. Halla María er ekki lærð í matreiðslunni, en hún og konurnar sem hjá henni starfa (karlmennirnir sjá um að keyra matinn út) gera allt af ástríðu og áhuga.
Daglega eru um 400 matarpakkar sendir út úr húsi til einstaklinga og fyrirtækja, bæði í Grindavík og til Reykjanesbæjar og Reykjavíkur, stærsta fyrirtækið er um 70 manna.
Hægt er að velja um súpu og salat í hverri viku, en matseðillinn breytist vikulega. Brauðin eru bökuð á staðnum, fyrir utan brauðin í samlokugerðina, sem bökuð eru í Hérastubbi bakara í Grindavík.
Grænmetisréttir, pizzur, vefjur, kjúklingaréttir og samlokur eru líka á matseðlinum.
Auk matarins eru kökur, vöfflur og kaffi í boði og eru kökurnar að sjálfsögðu bakaðar á staðnum.
Opið er frá kl. 8-17 virka daga og helgar kl. 11-17.